fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

Einar segir frásögn kvenna ekki vera nægt sönnunargagn í nauðgunarmálum – „Reynslan sýnir þetta og sannar“

Bjarki Sigurðsson
Laugardaginn 15. maí 2021 13:00

Einar Gautur Steingrímsson. Mynd: Lausnir lögmannsstofa

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Einar Gautur Steingrímsson, hæstaréttarlögmaður, er á þeirri skoðun að það sé ekki nægileg sönnun í nauðgunarmálum að kona segi mann hafa nauðgað sér. Hann skrifaði pistil um málið sem birtur var á visir.is í dag. 

„Miklar umræður eru um þetta málefni. Sjálfur hef ég komið að tugum slíkra mála oftast fyrir brotaþola en í einhverjum tilvikum sem verjandi. Málin hafa verið á öllum dómstigum, sennilega oftast í Hæstarétti. Efnið er víðfeðmt og ætla ég að vera með nokkrar færslur um þetta með stuttu millibili. Til einföldunar mun ég fyrst og fremst fjalla um nauðgunarbrot því efni þetta er nógu yfirgripsmikið samt. Stærsta spurningin sem menn spyrja er; af hverju ekki bara trúa konu sem kveður mann hafa nauðgað sér? Þessi spurning er skiljanleg ef horft er til þess sem nú verður vikið að,“ skrifar Einar.

Hann kemur með hugmyndir um hvernig sé hægt að sanna þessa kenningu sína.

„Segjum að tekið sé slembiúrtak úr þjóðskrá meðal fullorðinna kvenna og reynt að átta sig á hve margar hefðu það í sér að bera rangar sakir á menn eða væru líklegar til að upplifa atvik sem nauðgun sem þó væri það ekki. Síðan reyndu menn að átta sig á hversu líklegt sé að hinar sömu konur sæju ástæðu til að fara fram með slíkar sakargiftir. Að lokum geta menn velt fyrir sér hversu margar slíkar myndu gera slíkt í raun. Afar fáar konur stæðu þá eftir,“ skrifar Einar og segir þær vera það fáar að mönnum gæti þótt eðlilegt að telja ásakanir konu um nauðgun næga sönnun eina og sér.

Hann bendir þó á að réttarríki geti ekki þolað áhættuna af því að saklaus maður yrði dæmdur. Hann fjallar um tölfræðina sem hann nefndi hér fyrir ofan.

„Í máli OJ Simpson tókst verjendum að gabba kviðdóminn með rangri notkun tölfræði. Hún fólst í því að DNA rannsókn sýndi verulegar líkur á að erfðaefni sem fannst í tengslum við morð væri frá Simpson. Verjendur tóku líkindin og báru saman við íbúafjölda á LA svæðinu og reiknuðu út frá því hve margir aðrir kæmu til greina. Þetta stóðst auðvitað ekki því íbúar LA voru ekki allir á brotastað þegar morðið átti sér stað,“ segir Einar.

Tölfræðin sem hann rakti áðan er að hans eigin sögn röng. Hann segir vandann vera að af heildarfjölda landsmanna er einhver hópur til sem gæti borið menn rangar sakir um kynferðisbrot af einhverjum ástæðum.

„Af alltof mörgum slíkum málum, sem komið hafa á mitt borð, voru ástæðurnar margvíslegar og af ólíku tagi. Kem ég betur af því síðar. Af þeim fjölda, sem gætu borið fram rangar sakir um kynferðisbrot, skila sér alltaf einhverjar slíkar á hverju ári. Reynslan sýnir þetta og sannar. Á sama tíma veigra konur, sem raunverulega verða fyrir kynferðisbroti, sér gjarnan við að fara með mál alla leið. Skiljanlega því sönnun getur verið örðug og gerandameðvirkni er landlæg. Ekki síst í nærumhverfi kvennanna. Af þessu leiðir hins vegar að hlutfallið milli kæra sem eru á rökum reistar og rangra sakargifta verður alltof hátt til að hægt sé að nota það sem sönnunargagn að trúa bara konunni,“ segir Einar að lokum og bætir við að að fleira þurfi að koma til.

Hann gefur í skyn að hann ætli að skrifa fleiri pistla um málið og von er á þeim á næstu dögum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Í gær

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi