fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

Reiðarslag fyrir konurnar sem greindu frá harðræði á Laugalandi

Erla Dóra Magnúsdóttir
Þriðjudaginn 13. apríl 2021 12:24

Laugaland. Meðferðarheimili Eyjafjarðarsveit

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Konur sem vistaðar voru á meðferðarheimilinu Laugalandi stigu nýlega fram í umfjöllun Stundarinnar og greindu frá harðræði sem þær máttu sæta á heimilinu. Sökuðu þær heimilið um illa meðferð, andlegt og líkamlegt ofbeldi.

Í kjölfarið samþykkti ríkisstjórnin tillögu Ásmundar Einars Daðasonar, félags- og barnamálaráðherra, um að rannsaka hvort ásakanirnar ættu við rök að styðjast.

Nú hafa konurnar sent yfirlýsingu á fjölmiðla þar sem þær lýsa yfir vonbrigðum yfir því að Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar (GEF) hafi ekki haft samband við þær og yfir því að vinna sé ekki hafin við að rannsaka málið.

„Það er reiðarslag fyrir okkur sem höfum staðið í þessari baráttu, séð okkur knúnar til þess að fara með mjög persónuleg mál fram fyrir alþjóð í þeirri von að á okkur verði hlustað, okkur trúað  og að við fáum það ofbeldi sem við máttum sæta viðurkennt,“ segir í yfirlýsingunni.

Telja konurnar að ekki sé mikil alvara að baki rannsókninni og hún sé ekki sett í forgang, sem sé ekki í samræmi við þau loforð sem þeim hafi verið gefin.

Óska konurnar eftir að ríkisstjórnin standi við loforð sitt og rannsaki málið af alvöru.

Hér er yfirlýsingin í heild sinni:

Yfirlýsing frá konunum sem vistaðar voru á meðferðarheimilinu Laugalandi, áður Varpholti, á árunum 1997 til 2007.

Þann 19. febrúar síðastliðinn samþykkti ríkisstjórnin tillögu Ásmundar Einars Daðasonar félags- og barnamálaráðherra um að rannsaka hvort við konurnar sem vistaðar vorum á Laugalandi, áður Varpholti, á árunum 1997-2007 hefðum sætt illri meðferð, andlegu eða líkamlegu ofbeldi.

Við fögnuðum niðurstöðunni og við upplifðum að loksins var á okkur hlustað eftir áralanga þöggun, yfirhylmingu og aðgerðarleysi yfirvalda gagnvart okkur.

Ásmundur ákvað að fela Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar (GEF) að rannsaka málið.

Fyrir samþykki tillögunnar höfðum við átt tvo fundi með Ásmundi og aðstoðarmanni hans, Sóleyju Ragnarsdóttur lögfræðingi, sem við vorum allar sáttar með. Við upplifðum að þeim væri umhugað um mál okkar og einlægur vilji væri til þess að rannsaka það af alvöru.  Ásmundur tók það sérstaklega fram  að við gætum haft samband við sig, eða Sóleyju, hvenær sem væri í þessu ferli og óskað eftir fundi eða upplýsingum.

Núna tæpum tveimur mánuðum síðar hefur engin okkar heyrt neitt frá GEF, að frátöldu svari við tölvupósti sem ein af okkur sendi.

Í svari stofnarinnar til blaðamanns Stundarinnar kom fram að vinna væri ekki hafin við að rannsaka mál okkar og að stofnunin myndi sinna rannsókninni samhliða öðrum verkefnum.

Það er reiðarslag fyrir okkur sem höfum staðið í þessari baráttu, séð okkur knúnar til þess að fara með mjög persónuleg mál fram fyrir alþjóð í þeirri von að á okkur verði hlustað, okkur trúað  og að við fáum það ofbeldi sem við máttum sæta viðurkennt.

Það slær okkur að GEF eigi að  sinna rannsókninni samhliða mörgum öðrum verkefnum. Ef miðað er við fyrri mál þar sem starfshættir svipaðra heimila voru rannsakaðir má ætla að rannsóknin verði umfangsmikil.

Það gefur okkur ekki miklar vonir að heyra að það hafi ekki verið sett á laggirnar sérstakt teymi innan stofnunarinnar eða fenginn aukinn mannskapur til að koma að rannsókninni.

Okkur líður eins og rannsókn málsins sé ekki gerð af neinni alvöru eða hafi forgang. Við konurnar sem vorum beittar ofbeldi á meðferðarheimilinu sjáum ekki betur en að meðferð málsins sé ekki í neinu samræmi við þau loforð sem okkur voru gefin.

Þann 25. mars síðastliðinn sendi Gígja Skúladóttir tölvupóst fyrir hönd hópsins til Ásmundar og Sóleyjar þar sem við óskuðum eftir fundi vegna þess að við höfum áhyggjur af framgang mála.

Einnig sendum við fyrirspurnir varðandi rannsóknina, til dæmis varðandi tímaramma, hverjir koma að henni, hvað verður gert við upplýsingarnar o.s.frv. Þeim tölvupósti hefur enn ekki verið svarað núna 19 dögum síðar.

Við óskum eftir að ríkisstjórnin framfylgi því sem hún samþykkti þann 19. febrúar og rannsaki mál okkar kvennanna af alvöru.

Við óskum eftir því að ríkisstjórnin sjái til þess að rannsóknin verði sett í forgang en mæti ekki afgangi.

Við óskum einnig eftir því að upplýsingum varðandi rannsóknina verði komið til skila til okkar enda er um að ræða viðkvæm og persónuleg mál sem varða okkur.

Alexandra Magnúsdóttir

Ásta Önnudóttur

Brynja Skúladóttir 

Gígja Skúladóttir 

Gyða Dögg Jónsdóttir

Harpa Særós Magnúsdóttir

Hrafnhildur Jóhannesdóttir 

Katrín Alexandra

Kolbrún Þorsteinsdóttir

María Ás Birgisdóttir 

Teresa Dröfn Freysdóttir Njarðvík

Tinna Pálsdóttir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Lögregla kölluð út vegna tjaldbúða í miðborginni

Lögregla kölluð út vegna tjaldbúða í miðborginni
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Fordæmalaus staða gæti komið upp á gosstöðvunum á Reykjanesskaga – „Þetta er fyrsta skiptið sem við sjáum svona“

Fordæmalaus staða gæti komið upp á gosstöðvunum á Reykjanesskaga – „Þetta er fyrsta skiptið sem við sjáum svona“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Næsta skref – byltingakenndar breytingar

Næsta skref – byltingakenndar breytingar