fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

Feðgarnir Eggert og Jóhannes sagðir höfuðpaurar í milljónasvikamyllu – Veiðifélagar og fjölskyldumeðlimir meðal ákærðu

Heimir Hannesson
Mánudaginn 19. júlí 2021 21:00

mynd/samsett DV

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Héraðssaksóknari hefur ákært Eggert Skúla Jóhannesson fyrir að hafa svikið fé úr Ábyrgðarsjóði launa. Til viðbótar við Eggert eru sjö aðrir ákærðir fyrir aðild að fjársvikunum. Þeirra á meðal eru synir Eggerts, Jóhannes Gísli og Hörður Alexander auk móður Eggerts, Höllu Árnadóttur.

Hinir heita Friðfinnur V. Hreinsson, Guðlaugur Hermannsson, Gunnar Bender og Jóhann Ósland Jósefsson.

Ákæran er í sjö liðum og telur heilar 19 blaðsíður, sem er með allra lengsta móti. Eru ýmist Eggert eða eldri sonur hans, Jóhann Gísli ákærðir í þeim öllum. Þá er það sérstaklega tilgreint í ákærunni að Eggert tengist öllum ákærðu ýmist fjölskyldu-, vina- eða viðskiptaböndum og hafi haft aðkomu að rekstri allra fyrirtækjanna sem við sögu koma. Jóhann Ósland mun hafa tekið við sem framkvæmdastjóri og prókúruhafi í rekstri fjögurra af sex fyrirtækjum sem við sögu koma skömmu fyrir gjaldþrot þeirra. Þannig virðist Jóhann Ósland hafa starfað sem nokkurs konar útfararstjóri fyrir feðgana Eggert og Jóhann Gísla, ef marka má ákæru Héraðssaksóknara.

Í lok árs 2008 varð fyrirtæki Eggerts, Skipamiðlunin ehf. gjaldþrota. Tilkynning um að Jóhann Ósland hefði tekið yfir framkvæmdastjórn og sem prókúruhafi fyrirtækisins barst fyrirtækjaskrá 17 dögum fyrir gjaldþrot. Í ákæru segir að Eggert hafi í desember farið með móður sinni, Höllu Árnadóttur, í VR og framvísað þar fölsuðum starfssamningum þeirra við Skipamiðlunina ehf., launaseðlum og öðru með það að markmiði að fá stéttarfélagið til þess að gera fyrir þeirra hönd kröfu í þrotabú félagsins, sem og kröfu um greiðslu úr Ábyrgðarsjóði launa. Tókst þeim að svíkja rúmar fjórar milljónir úr sjóðnum það skiptið. Af þeim runnu rúmlega tvær milljónir inn á þeirra reikninga.

Handritið virðist hafa verið margnýtt

Eftir þessu sama handriti virðist Eggert og hinir ákærðu hafa leikið hin skiptin.

Árið 2012 samþykkti Ábyrgðarsjóður launa 2,8 milljóna greiðslu til Eggerts vegna ógreiddra launa hins gjaldþrota Almenna leigufélags ehf. Það gerði hann, samkvæmt ákæru, með því að framvísa fölsuðum gögnum til VR sem fór svo fyrir hans hönd með kröfu í þrotabúið og Ábyrgðarsjóð. Segir í ákærunni að Jóhann Ósland hafi tekið við stjórn felagsins þann 15. október 2012, en tilkynning þess efnis var móttekin hjá Fyrirtækjaskrá 7. nóvember 2012, eða rúmum þremur mánuðum áður en félagið var tekið til gialdþrotaskipta. Ráðningartími Eggerts var samkvæmt þeim samningi frá 1. október 2012, en samningurinn er dagsettur þann 16. október 2012. Samningurinn er undirritaður af þeim Jóhanni og Eggerti, þrátt fyrir að Jóhann hafi ekki tekið við stjórn félagsins fyrr en rúmum tveimur vikum síðar.

Enn og aftur kom Jóhann Ósland við sögu þegar fyrirtækið B-400 ehf. varð gjaldþrota árið 2012, en í því tilfelli var það eldri af tveimur ákærðum sonum Eggerts, Jóhannes Gísli, sem gerði kröfu um greiðslu úr Ábyrgðarsjóði launa með því að framvísa gögnum til VR. Í ákærunni eru þau gögn sögð fölsuð, og meint svik Jóhannesar og Jóhanns í sögð nema rétt tæpum þremur milljónum.

Veiðifélagar og tveir synir dregnir inn

Ári síðar, 2013, varð fyrirtæki Eggerts, Alexandra ehf. gjaldþrota. Gunnar Bender gerði þá kröfu í Ábyrgðarsjóð launa, með sama hætti og áður hefur verið lýst, í gegnum VR. Segir í ákærunni að sú krafa hafi verið tilhæfulaus og er Gunnar ákærður fyrir fjársvik. Þá er Eggert ákærður fyrir aðild að þeim svikum, með því að hafa falsað skjöl og gögn til þess að gera Gunnari kleift að leggja fram kröfu sína. Í ákærunni segir að þeir Gunnar og Eggert hafi kynnst er þeir sátu saman í stjórn Landssambands stangveiðifélaga. Námu hin meintu svik í þetta sinn um 2,8 milljónum.

Árið 2015 fór fyrirtækið Fagsýningar ehf., sem síðar breytti nafninu sínu í K-100 ehf. í gjaldþrot. Tæpum mánuði fyrir gjaldþrotið tók Jóhann Ósland ásamt bróður sínum, sem nú er látinn, við stjórn fyrirtækisins og voru þeir prókúruhafar við gjaldþrot þess. Segir í ákæru að bróðir Eggerts, yngri sonur Eggerts, Hörður Alexander, og veiðifélagi Eggerts, Friðfinnur, hafi allir gert tilhæfulausar kröfur, með samskonar hætti og áður hefur verið lýst. Sú nýbreytni varð þó hér, að þremenningarnir fengu lögmannsstofu til þess að annast kröfugerð sína fyrir sig. Þá segir jafnframt að bróðir Eggerts hafi hvergi komið nálægt kröfunni sem gerð var í hans nafni, heldur hafi Eggert staðið að baki henni og blekkt svo bróður sinn til þess að taka við peningunum úr hendi lögmannsstofunnar undir því yfirskini að hann væri að ganga í gegnum gjaldþrot og gæti ekki tekið við peningunum, sem þó vissulega voru hans, að hans sögn. Samtals námu hin meintu svik vegna gjaldþrots K-100 ehf. um fjórum milljónum.

Bróðir Eggerts er ekki ákærður í málinu og tekið er fram í ákæru að gögn málsins renni stoðum undir þann framburð hans að hann hafi ekkert vitað af bollaleggingum bróður síns.

Að lokum er Gunnar ákærður fyrir tilraun til fjársvika með því að hafa lagt fram kröfu um greiðslu 5,6 milljóna vegna ætlaðra starfa hans fyrir Eggert á eigin kennitölu Eggerts sem síðar varð gjaldþrota. Þá mun Guðlaugur Hermannsson einnig hafa gert rúmlega 7 milljóna kröfu af sömu ástæðu og Gunnar. Munu þeir Gunnar og Guðlaugur hafa framvísað gögnum til VR sem Eggert útbjó og studdi. Af ákærunni að dæma virðist þeir hafa gengið of langt í það sinn, en Ábyrgðarsjóður launa neitaði að greiða þeim Guðlaugi og Gunnari.

Löng saga fjársvika

DV hefur áður sagt frá þeim feðgum Eggerti og Jóhannesi Gísla. Sagði DV til að mynda frá því þegar rannsókn hófst á því máli sem nú er ákært fyrir árið 2016.

Sjá nánar: Eggert Skúli og Jóhannes Gísli – Annar margdæmdur og hinn grunaður um fjársvik

Þar sagði jafnframt að Jóhannes Gísli hafi árið 2016 verið sakfelldur og dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir fjársvik úr vefverslun ELKO. Í dómnum var því lýst hvernig Jóhannes hafi í fjögur skipti pantað vörur, meðal annars snjallsjónvörp og Apple fartölvur og fengið þær afhentar með fölsuðum greiðslukvittunum í verslunum ELKO. Var það fjórði dómur Jóhannesar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar er með áætlun tilbúna til að mæta yfirvofandi stórsókn Rússa

Yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar er með áætlun tilbúna til að mæta yfirvofandi stórsókn Rússa
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“
Fréttir
Í gær

Sendiherra Trump á Íslandi þykist vera kúreki í kosningabaráttu sinni – „Það er ekki hægt að skálda þetta“

Sendiherra Trump á Íslandi þykist vera kúreki í kosningabaráttu sinni – „Það er ekki hægt að skálda þetta“
Fréttir
Í gær

Svívirðileg brot gegn sjö ára stjúpdóttur

Svívirðileg brot gegn sjö ára stjúpdóttur
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum