fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

Nýjar reglur á landamærum taka gildi á miðnætti – Úrskurður héraðsdóms hefur áhrif

Jón Þór Stefánsson
Fimmtudaginn 8. apríl 2021 16:55

Keflavíkurflugvöllur. Mynd/Ernir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Heilbrigðisráðuneytið kynnti nýjar reglur á landamærum í tilkynningu sem barst fyrir skömmu. Reglugerðin mun taka gildi á miðnætti í kvöld, 9, apríl, en hún byggir á tillögum sóttvarnalæknis.

Í tilkynningunni kemur fram að skýrari kröfur verði gerðar um skilyrði fyrir heimasóttkví varðandi húsnæði og umgengnisreglur. Einnig kemur fram að þeir sem ekki geta verið í heimasóttkví og uppfylla sett skilyrði þurfa að fara í sóttvarnahús en ekkert gjald verður tekið fyrir þá dvöl.

Þá verður ákvæði um skyldu einstaklinga af hááhættusvæðum til að dvelja í sóttkví í sóttvarnahúsi fellt úr gildi. En Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði að ekki væri fullnægjandi lagastoð fyrir.

Í minnisblaði til heilbrigðisráðherra segir sóttvarnalæknir að ófullnægjandi fylgni við reglur um heimasóttkví þeirra sem koma til landsins sé ein helsta ógn við núverandi smitvarnir á landamærum. Veruleg hætta sé á að smit berist inn í landið nema gripið verði til frekari aðgerða á landamærunum. Hann bendir á að umfang bólusetningar sé ekki orðið nægilegt hér á landi til að koma í veg fyrir útbreiddan faraldur, víðast erlendis sé faraldurinn í mikilli útbreiðslu sem auki hættuna á að smit berist til landsins. Þá séu ný og meira smitandi afbrigði veirunnar orðin allsráðandi í nálægum löndum sem virðist valda alvarlegri veikindum í yngri aldurshópum, auk þess sem óvissa ríki um hvort þau geti valdið endursýkingum og hve mikla vernd þau bóluefni sem nú eru í notkun veiti gegn þeim.

Helstu reglur um sóttkví og sýnatöku á landamærum frá og með 9. apríl eru eftirfarandi:

Sömu reglur gilda um alla farþega, óháð því hvaðan þeir koma: Sóttvarnaaðgerðir á landamærum taka jafnt til allra, óháð því hvort þeir koma frá löndum sem skilgreind eru sem áhættusvæði eða ekki.

Sýnataka og sóttkví: Öllum sem koma til landsins verður sem fyrr skylt að fara í sýnatöku á landamærunum, fimm daga sóttkví og aðra sýnatöku við lok hennar (sjá þó nánar um börn hér að neðan og sýnatöku hjá einstaklingum með vottorð). Fólki er heimilt að vera í heimasóttkví að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Þeir sem hafa ekki tök á að vera í heimasóttkví og/eða kjósa frekar að dvelja í sóttvarnahúsi eiga kost á því og er dvölin þar viðkomandi að kostnaðarlausu.

Kröfur til heimasóttkvíar: Þeir sem eru í sóttkví þurfa að vera í húsnæði sem uppfyllir skilyrði og umgengnisreglur samkvæmt nýjum leiðbeiningum sóttvarnalæknis. Í því felst að einstaklingur skuli vera einn á dvalarstað en ef fleiri dveljast þar þurfa þeir að sæta öllum sömu skilyrðum sóttkvíar. Þeir sem ekki geta dvalið í heimasóttkví sem uppfyllir skilyrði sóttvarnalæknis þurfa að dvelja í sóttvarnahúsi.

Brot á heimasóttkví: Gerist einstaklingur uppvís að því að brjóta heimasóttkví getur sóttvarnalæknir ákveðið að hann skuli ljúka sóttkví í sóttvarnahúsi.

Sóttvarnahús: Þeir sem ekki hafa tök á að vera í heimasóttkví og/eða kjósa frekar að dvelja í sóttvarnahúsi eiga kost á því. Dvölin er viðkomandi að kostnaðarlausu. Þeim sem dvelja í sóttvarnahúsi verður gert kleift að njóta útiveru og sérstakt tillit verður tekið til barna, s.s. varðandi útiveru og annan aðbúnað.

Sýnataka og sóttkví barna: Börn fædd 2005 eða síðar fara í sýnatöku á landamærunum. Ferðist barn með einstaklingi sem skylt er að sæta sóttkví dvelur barnið þar með honum og losnar úr sóttkví ef síðara sýni úr samferðamanni er neikvætt. Ef samferðamaðurinn er undanþeginn sóttkví er barnið það sömuleiðis. Barn sem ferðast eitt þarf ekki að fara í sóttkví.

Sýnataka hjá einstaklingum með vottorð: Krafa um sýnatöku hjá einstaklingum með bólusetningarvottorð eða vottorð um fyrri sýkingu er sett vegna vísbendinga um að þessir einstaklingar geti borið smit. Þeir þurfa ekki að sæta sóttkví en skulu bíða niðurstöðu úr sýnatöku á dvalarstað. Krafan er tímabundin og verður endurskoðuð fyrir 1. maí.

Aukið eftirlit og hærri sektir: Sóttvarnalæknir leggur til að eftirlit með einstaklingum í heimasóttkví verði aukið í samvinnu við almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og jafnframt að sektir fyrir brot á sóttkví verði hækkuð til muna. Heilbrigðisráðherra hefur komið tillögum sóttvarnalæknis varðandi þetta á framfæri við ríkissaksóknara og ríkislögreglustjóra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Uppnám á Íslandsmótinu í skák – Stórmeistari hættir þátttöku út af hávaða í kylfingum

Uppnám á Íslandsmótinu í skák – Stórmeistari hættir þátttöku út af hávaða í kylfingum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Össur segir Jóni Gnarr að hætta að væla

Össur segir Jóni Gnarr að hætta að væla
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sigmar harðorður um stöðuna hér á landi – „Þetta er hálf­gerð sturlun“

Sigmar harðorður um stöðuna hér á landi – „Þetta er hálf­gerð sturlun“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki