fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

„Hvílir Geir­finnur hér?“ spyr Jón Ármann – „Brugðu á það ráð að setja líkið í tunnu“

Máni Snær Þorláksson
Þriðjudaginn 23. febrúar 2021 14:12

Geirfinnur Einarsson hvarf 19. nóvember 1974.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Á vormánuðum 1980 var Hásteinn ÁR-8 á humarveiðum suð-austur af Vestmannaeyjum. Það var rjómalogn og sléttur sjór þegar skipverjar drógu inn trollið og tæmdu pokann á dekkið. Innan um humarinn sást glitta í tvö vaðstígvél, og þegar betur var að gáð neðri helming af mannslíkama klæddan í gallabuxur með leðurbelti um mittið. Nálykt fyllti lognið og skipverjar brugðu á það ráð að setja líkið í tunnu með loki. Þá var haldið til hafnar í Eyjum þar sem lögreglan beið á kæjanum.“

Svona hefst pistill sem Jón Ármann Steinsson skrifaði á Vísi en pistillinn ber yfirskriftina „Hvílir Geir­finnur hér?“. Í pistlinum veltir Jón því fyrir sér hver maðurinn sem fannst í sjónum var. „Hér gæti frásögnin endað ef ekki væri fyrir það að einskiss manns var saknað og engin tilraun var gerð, hvorki fyrr né síðar, til að finna út hver þessi óþekkti sjómaður væri,“ segir Jón.

„Af því beltið var með silfursylgju gat lögreglan sér til að hér væri um útlending að ræða. Þá var ómögulegt að segja til um hversu lengi útlendingurinn hafði hvílt í sjó. Þar með endaði lögreglurannsóknin.“

„Hvað varð svo um þriðja manninn?“

Jón færir þá sögusviðið til Vestmannaeyja, nánar tiltekið þann 20. nóvember árið 1974. „Þrír menn komu til eyja, og tveir þeirra fóru þaðan aftur, og eftir það spurðist ekkert til hins þriðja. Já, þetta hljómar eins og saga um ekki neitt, en engu að síður varð þessi heimsókn til þess að endurupptaka Geirfinnsmálsins tók vinkilbeygju árið 2016,“ segir hann.

„Lögreglan yfirheyrði mennina tvo og fyrrum lagskonu annars þeirra en ekkert kom út úr því. Svo var pælt í hvort og hvernig Geirfinnur gæti hafa komið til Eyja daginn eftir að hann hvarf í Keflavík, og ef þriðji maðurinn var ekki sjálfur Geirfinnur, hver var hann þá, og hvað varð svo um þriðja manninn? Gróusögurnar lognuðust brátt útaf enda engin svör.

„Hvað varð um þennan horfna ættingja“

Jón bendir á að í millitíðinni hafi líkið fundist ári 1980. „En engin gróusaga verður til úr því hráefni; Var líkið Geirfinnur? Var þarna fram kominn þriðji maðurinn? Eða bara einhver óþekktur útlendur sjómaður?“ spyr hann.

„Í algjöru upplýsingatómi um þennan meinta óþekkta sjómann tók stýrimaður Hásteins sig til og hóf fjársöfnun. Sá var frá Stokkseyri og bar sterkar taugar til kirkjunnar á staðnum. Taldi hann plássinu til bóta ef líkið yrði jarðað þar og reistur minnisvarði helgaður „Óþekkta sjómanninum“. Fjársöfnunin gekk vonum framar og minnisvarðinn er Stokkseyringum og kirkjugarðinum til sóma.“

Jón segir að svo virðist vera sem allir hafi sætt sig við að sjómaðurinn yrði varanlega óþekktur og að það væri algjör óþarfi að finna út hver hann var. „Skítt með tilkomu DNA sem gæti sýnt ættartré í báða ættliði um aldir og jafnvel birt nafn hans í leitarniðurstöðum á netinu. Þá er eflaust einhversstaðar fjölskylda sem veltir því fyrir sér hvað varð um þennan horfna ættingja sinn. Kannski er það fólk í útlöndum, eða fólk hér heima á Íslandi? Hver veit?“

„Á rykfallinni skrifstofu…“

Að lokum segist Jón vera kominn með lausn gátunnar, eða í það minnsta formálann að lausninni. „Á rykfallinni skrifstofu inni í íslenska ríkisbákninu situr embættismaður og les vefblöðin, þessa sömu grein og þú ert að lesa núna hér á Vísi. Þessi embættismaður er samviskusamur með afbrigðum og beintengdur hinni stórmerkilegu Kennslanefnd,“ segir hann en Kennslanefndin er rannsóknarnefnd sem hefur það hlutverk að bera kennsl á látna menn.

„Nefndin sú hefur ekki mikið fyrir stafni dags daglega og virðist ekki knúin af frumkvæðisáráttu heldur bíður skipana að ofan. En þessi embættismaður okkar hefur bæði faglegan metnað og auk þess persónulegan áhuga á Geirfinnsmálinu. Hann tekur snarlega upp símann, hringir í formann nefndarinnar…“

„Því miður er hæpið að þetta verði forsíðufrétt“

Jón segir að ef formaður nefndarinnar, Runólfur Þórhallsson aðalvarðstjóri, svarar kallinu þá gætu komið nýjar fréttir. „Týndi sjómaðurinn er fundinn!“ gæti fréttin verið segir hann.

„Og nafnið hans og æviágrip fylgir, einnig viðbrögð ættingja og þakklæti þeirra til Kennslanefndar eftir áratuga vangaveltur. En því miður er hæpið að þetta verði forsíðufrétt um að Geirfinnur sé loks fundinn í ómerktri gröf á Stokkseyri, þökk sé Kennslanefnd. En allt eru þetta innantómar spekúlasjónir nema formaður Kennslanefndar svari símanum.“

DV náði sambandi við einn meðlim Kennslanefndarinnar en sá þekkti ekki til málsins og vissi ekki hvort það hafi verið gerðar tilraunir til að bera kennsl á óþekkta sjómanninn. Ekki náðist í Runólf við gerð fréttarinnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“