Samkvæmt tilkynningu frá Landsbjörg þá hafa nánast allar björgunarsveitir á svæðinu milli Þórshafnar og Djúpavogs verið kallaðar út í dag vegna óveðursins á Austurland.
„Fyrstu útköll bárust um klukkan 8:00 í morgun á Neskaupstað og var þó nokkuð mikið af verkefnum á borði björgunarsveitarinnar þar fyrir hádegi. Í kringum hádegi í dag fjölgaði svo verulega útköllum hjá björgunarsveitum á austurlandi þá höfðu nánast allar sveitirnar á austurlandi verið kallaðar út og voru að sinna verkefnum, sem nú eru orðin rúmlega 60 á öllu svæðinu,“ segir í tilkynningu.
Flest útköllin bárust frá Seyðisfirði, Norðfirði og Djúpavogi en þar er mikið um fok á þakplötum og nokkuð um rúður sem hafa brotnað bæði í bílum og í íbúðarhúsum.
„Björgunarsveitarfólk hefur víða farið í eftirlitsferðir um bæi og sinn fjölda verkefna vegna foks á lausamunum.
Á Seyðisfirði var björgunarsveitarfólk kallað út klukkan 10 í morgun vegna rúðu sem brotnað hafði í veðurofsanum. Í framhaldi fóru að berast tilkynningar um fok á braki, lausamunum og stórum hlutum í bænum, eftir hádegi fjölgaði verkefnum mikið. Björgunarsveitarfólk hefur náð að sinna flestum verkefnum en einhver verkefni hafa þurft að bíða þar sem fyllsta öryggis er gætt enda mikið um brak á svæðinu.
Á Neskaupstað í Norðfirði hefur björgunarsveitarfólk sinnt yfir 20 útköllum frá því klukkan 07:56 í morgun, þar hefur verið mikið um fok á lausamunu og gluggar og tré hafa brotnað. Það tók að hægast um hjá björgunarsveitinni um klukkan 14 í dag en klukkan 15 ákvað lögreglan að loka Norðfjarðarvegi vegna fokhættu og fleiri tilkynningar fóru að berast til björgunarsveitar um fok og báta sem voru að losna frá bryggju.
Á Djúpavogi hefur björgunarsveitin verið að störfum síðan 11 í morgun þegar fyrsta útkallið barst vegn foks á lausamunum. Óvenju mikill vindur hefur verið í bænum og hafa margar tilkynningar borist um fok á lausamunum um allan bæinn.“