fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fréttir

Tólf konur myrtar á Íslandi og konum refsað eftir að hafa verið neyddar til að flytja fíkniefni

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 25. nóvember 2020 10:31

Aðalheiður Ámundadóttir.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Á síðustu tuttugu árum hafa tólf konur verið drepnar á Íslandi af eiginmönnum sínum, sambýlismönnum eða karlmönnum sem þær vildu ekki hlýða,“ segir Aðalheiður Ámundadóttir, fréttastjóri Fréttablaðsins, í leiðara blaðsins í dag.

Í dag er alþjóðlegur baráttudagur gegn ofbeldi gagnvart konum. Aðalheiður notar það tilefni til að minnast kvenna sem látist hafa af völdum heimilisofbeldis og vekja athygli á hlutskipti kvenna sem eru nauðug burðardýr fíkniefna.

Um konurnar 12 sem hafa verið drepnar á undanförnum 20 árum segir Aðalheiður:

„Flestar voru kyrktar, sem bendir til að gerendurnir hafi alls ekki getað hamið heift heimilisofbeldisins án þess endilega að hafa morð á stefnuskránni. Ein var barin til bana með kúbeini, önnur með slökkvitæki. Morðingja hinnar síðarnefndu mislíkaði að hún sængaði hjá hörundsdökkum mönnum. Ung kona var stungin 28 sinnum með hnífi, áður en hún komst til að vitna gegn morðingja sínum í nauðgunarmáli vinkonu sinnar. Rúmlega tvítugri stúlku var kastað fram af svölum á tíundu hæð af því hún neitaði gerandanum um samfarir.“

Tvær þessara tólf kvenna voru drepnar árið 2000, tvær létust í mars síðastliðnum. Karlmenn þeim nákomnir hafa verið ákærðir fyrir manndrápin.“

Nauðugum burðardýrum refsað

Aðalheiður víkur einnig að meðferð réttarkerfisins á þeim konum sem neyddar eru til að flytja fíkniefni:

„Fjöldi kvenna hefur einnig hlotið fangelsisdóm á Íslandi fyrir ofbeldi sem þær hafa verið beittar. Árið 2013 var spænsk kona dæmd í árs fangelsi fyrir innflutning á fíkniefnum sem troðið var inn í leggöng hennar með valdi af ofbeldismönnum á Spáni. Hún var handtekin við komuna til landsins og dæmd í fangelsi. Dómarinn lét þess getið í dómi að frásögn hennar um neyð og ofbeldi væri trúverðug. Hún var samt sakfelld og fékk tólf mánaða dóm. Hún er ein af fjölmörgum.

Líkt og í baráttunni gegn morðum og misþyrmingum í nánum samböndum hefur okkur lítið orðið ágengt í baráttu við mansalið sem svokölluð burðardýr verða fyrir. Aldrei berast fréttir af því að manseljendur þessara kvenna hafi verið eltir uppi, ákærðir og dæmdir. Þessi brotastarfsemi virðist því halda áfram óáreitt, með minniháttar afföllum af efnum og fórnarlömbum. Í síðustu viku voru þýskar mæðgur dæmdar í fangelsi fyrir að flytja annarra manna fíkniefni til landsins í líkama sínum. Engum sögum fer af kvölurum þeirra.“

Ekkert lát á ofbeldi

Aðalheiður bendir á að þrátt fyrir að konur geti fagnað mörgum góðum sigrum í jafnréttisbaráttunni séu konur enn drepnar á heimilum sínum og sé enn refsað fyrir ofbeldisbrot sem þær verða fyrir, og vísar þar til mála sem snerta konur er hafa flutt fíkniefni nauðugar. Hún bendir á að tilkynningum gegn heimilisofbeldi fjölgi milli ára en þar kunni þó einhverju að ráða vakning í málaflokknum sem leiði til fleiri tilkynninga. Hún óttast hins vegar að vakningin nái ekki til þeirra kvenna sem varð fyrir alvarlegasta ofbeldinu. Í lok leiðarans segir Aðalheiður:

„Í dag er alþjóðlegur baráttudagur gegn ofbeldi gagnvart konum. Dagurinn er gott tilefni til að minnast þeirra kvenna sem kynsystur þeirra gleyma of oft í aktívisma sínum. Kvenna sem hafa dáið af völdum heimilisofbeldis án þess að hafa fundið tækifæri eða leiðir til að óska eftir hjálp, kvenna sem sitja í fangelsi fyrir ofbeldið sem þær hafa orðið fyrir, kvenna sem hafa ekkert tengslanet í landinu okkar annað en ofbeldismenn, hvort heldur er á heimilum sínum, í undirheimum eða í forstjórastólum.“

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“