fbpx
Fimmtudagur 03.júlí 2025
Fréttir

Forsvarsmaður Steðja boðaður í skýrslutöku hjá lögreglu vegna netsölu á bjór – „Erum að fá gríðarlegar undirtektir“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 28. október 2020 09:43

Mynd: Facebook-síða Steðja

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dagbjartur Arilíusson, framkvæmdastjóri Steðja Brugghúss hefur verið boðaður til skýrslutöku hjá lögreglu vegna netsölu á framleiðslu brugghússins.

Fréttablaðið greindi frá því á dögunum að Steðji væri fyrsta brugghúsið á Íslandi sem hefði opnað vefverslun með áfengi.

Dagbjartur benti á í viðtali við Bylgjuna í morgun að samkvæmt EES-reglum væri netverslun með bjór heimil. Óþolandi sé að Íslendingar geti ekki keypt bjór í innlendri netsölu á sama tíma og þeir geti keypt bjórt erlendis frá í gegnum netið:  „Í stuttu máli getur þú keypt bjór er­lendis frá og fengið hann sendan heim með póstinum, án nokkurra kvaða eða vanda­mála. En sem Ís­lendingur geturðu ekki keypt ís­lenska vöru og fengið heimsenda. Það er al­gjör­lega galið. Þið sjáið það bara, ef Þjóð­verjar mættu bara kaupa bjór frá Frakk­landi, myndi það ganga upp?“

Dagbjartur segist ætla að láta hart mæta hörðu og segist tilbúinn að fara með mál sitt fyrir EFTA-dómstólinn.

Hann kvartaði einnig undan því að dreifingarkerfi ÁTVR færi illa með litla aðila á borð við Steðja. Aðeins væri í boði að vera með vörur fyrirtækisins í tveimur verslunum ÁTVR. Hilluplássið væri mjög takmarkað fyrir litla aðila og þeir yrðu að kaupa sjálfir upp framleiðslu sína til að að komast almennilega að með vöruna í búðum ÁTVR.

„Við erum að fá gríðarlegar undirtektir,“ sagði Dagbjartur við Bylgjuna en hann segir að fólk vilji standa með litlum aðilum á markaðnum, því það sæi hvaða mismunun væri í gangi. Var hann að koma úr hringferð um landið þar sem hann kynnti vörur brugghússins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Eftirlýstur hælisleitandi úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir að hafa forðast brottvísun í tæp 3 ár

Eftirlýstur hælisleitandi úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir að hafa forðast brottvísun í tæp 3 ár
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Alvarleg staða á Landspítalanum – Ófaglærðir halda starfseminni gangandi þegar kemur að hjúkrun og umönnun

Alvarleg staða á Landspítalanum – Ófaglærðir halda starfseminni gangandi þegar kemur að hjúkrun og umönnun
Fréttir
Í gær

Sífellt fleiri kalla eftir því að 71. greininni verði beitt gegn málþófi stjórnarandstöðunnar

Sífellt fleiri kalla eftir því að 71. greininni verði beitt gegn málþófi stjórnarandstöðunnar
Fréttir
Í gær

Segir stjórnarandstöðuna leggja fæð á Ingu Sæland og hindra framfaramál með botnlausu málþófi

Segir stjórnarandstöðuna leggja fæð á Ingu Sæland og hindra framfaramál með botnlausu málþófi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Skemmdarverk á Seltjarnarnesi – Lögreglan leitar vitna

Skemmdarverk á Seltjarnarnesi – Lögreglan leitar vitna
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kemur fram á lokatónleikum Black Sabbath þrátt fyrir að hafa verið skotinn margsinnis – Árásarmennirnir gómaðir

Kemur fram á lokatónleikum Black Sabbath þrátt fyrir að hafa verið skotinn margsinnis – Árásarmennirnir gómaðir