fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
Fréttir

Sögusagnir um ósæmilega framkomu Björgólfs Thors sagðar rangar

Ritstjórn DV
Mánudaginn 17. ágúst 2020 11:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samkvæmt frétt Mannlífs, sem birtist rétt í þessu, ganga sögusagnir þess efnis að athafnamaðurinn Björgólfur Thor Björgólfsson hafi gerst sekur um ósæmilega framgöngu í veiðiferð sem hann fór í 17. júní í Haffjarðará með þeim afleiðingum að honum hafi verið vísað úr ánni.

Með í ferðinni voru meðal annars hinn þekkti knattspyrnumaður David Beckham og leikstjórinn Guy Ritchie en þetta ku vera þeirra fyrsta ferð eftir innilokun vegna sóttvarnarástæðna í júní. Þremenningarnir eru allir búsettir í Bretlandi þar sem lokanir voru mun stífari en hérlendis.

Eftir veiðiferðina spunnust sögusagnir þess efnis að ýmislegt ósæmilegt hafi átt sér stað bak við luktar dyr. Mannlíf leitaði til eiganda Haffjarðarár til að fá staðfestingu á orðrómum og á því að Björgólfur hafi hagað sér með það óviðeigandi hætti að reka hafi þurft hann á dyr ásamt félögum hans. Félagarnir áttu þó ekki að hafa hagað sér ósæmilega, þvert á móti.

Samkvæmt frétt Mannlífs hljómar ein af sögusögnunum þannig að Björgólfur hafi í framhaldi ferðarinnar keypt Haffjarðará til að fá aðgang þar að nýju. Óttar neitaði þessu í samtali við Mannlíf og segir ekkert til í sögusögnunum

„Allar þessar sögur um Björgólf Thor og Haffjarðará eru rangar. Hann hefur verið viðskiptavinur okkur í nokkur ár og ekkert komið upp á,“ hefur Mannlíf eftir Óttari.

Líkt og aðrir fjölmiðlar leitaði DV eftir staðfestingu á þessum orðrómum í nokkurn tíma og sagði Óttar í samtali við ritstjóra að um hugarburð og uppspuna frá rótum væri að ræða.

Ekki dugði það þó til að kveða sögusagnirnar niður sem virðast frá júní hafa orðið nákvæmari og sagðar í meiri smáatriðum.

Blaðamaður DV hitti á Björgólf og spurði hann út í málið. Kvaðst Björgólfur ekki kannast við málið, en varð þó tvísaga þegar hann viðurkenndi að hafa heyrt eitthvað af málinu. Hann sagði það ekkert nýtt að sögusagnir væru á kreiki um sig.

DV hefur staðfestar heimildir fyrir því að aðilar sem skemmta áttu þremenningunum í ánni hafi verið afbókaðir með stuttum fyrirvara og ástæður afbókaninar hafi verið þunnar, var þar borið við Covid. Ritstjóri DV spurði Óttar út í málið sem sagðist ekki kannast við það. Ekkert skemmtanahald hefði fylgt þessum mönnum og ekkert verið öðruvísi en það átti að vera og þeir hafi ekki farið fyrr en áætlað var.

„Ég kannast ekki við neitt skemmtanahald. Það hefur aldrei verið á vegum þessara manna,“ segir Óttar en sem áður segir hefur fengist staðfest að sóst var eftir söngskemmtun í Haffjarðará á þessum tíma.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Krefst svara um hvort mannréttindi séu brotin í almannatryggingakerfinu

Krefst svara um hvort mannréttindi séu brotin í almannatryggingakerfinu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Málverkum stolið af sýningu í Bolholti um hábjartan dag

Málverkum stolið af sýningu í Bolholti um hábjartan dag
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Davíð segir aðeins tímaspursmál þangað til annað ungmenni láti lífið: „Við þurfum að vakna og það núna“

Davíð segir aðeins tímaspursmál þangað til annað ungmenni láti lífið: „Við þurfum að vakna og það núna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Vendingar í deilu Bríetar og Pálma – Frávísun vegna verulegra ágalla

Vendingar í deilu Bríetar og Pálma – Frávísun vegna verulegra ágalla
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Áslaug Arna fær stuðning og gagnrýni eftir umfjöllun um laun hennar – „Hjóla af hörku og hatri gegn konum“ – „Sjúga spena ríkisins“

Áslaug Arna fær stuðning og gagnrýni eftir umfjöllun um laun hennar – „Hjóla af hörku og hatri gegn konum“ – „Sjúga spena ríkisins“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kvartaði vegna trúnaðarbrests í sveitarstjórn

Kvartaði vegna trúnaðarbrests í sveitarstjórn