fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

Íslenskur sálfræðingur harðlega gagnrýndur fyrir greinaskrif á Vísi – „Níð gagnvart trans fólki og jaðrar við hatursorðræðu“

Erla Dóra Magnúsdóttir
Miðvikudaginn 12. ágúst 2020 11:54

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Trans Ísland, stuðnings- og baráttusamtök fyrir trans fólk á Íslandi, hafa gefið frá sér yfirlýsingu vegna greinar Arnars Sverrissonar, sálfræðings, sem birtist á Vísi í gær undir fyrirsögninni: „Kynröskun stúlkna. Hin nýja „móðursýki““. Undir yfirlýsinguna skrifar Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir, formaður Trans Íslands og segir í yfirlýsingu grein Arnars jaðra við hatursorðræðu. 

Tímabundin móðursýki

Arnar fjallar í grein sinni um kynhneigð og trans fólk. Í grein sinni talar hann meðal annars um karlkonur og kvenkarla og talar um geðsjúkdóminn kynröskun og fjallar um að trans fólk sé haldið tímabundinni móðursýki.

Trans Ísland segja það mikil vonbrigði að sjá heilbrigðisstarfsmann fara með jafn miklar dylgjur og rangfærslur og Arnar gerir í grein sinni. Sé hann að styðjast við úreltar kenningar sem nútíma sálfræði og geðlækningar hafi hafnað.

Það er mikið áhyggjuefni að einstaklingur sem er sálfræðingur fari með slíkt fleipur og haldi á lofti úreltum hugtökum sem eru misvísandi, meiðandi og niðrandi fyrir viðkvæman samfélagshóp. Trans fólk á Íslandi og víðar upplifir enn oft mikla fordóma og útskúfun, og er andlega heilsa þeirra því oft verri af sökum þess. Höfundur bætir gráu ofan á svart með grein sinni, sem er lítið annað en níð gagnvart trans fólki og jaðrar við hatursorðræðu.“

Fordómafull og meiðandi orðræða

Trans Ísland kveðst eiga erfitt með að ímynda sér hver tilgangur Arnars er með greininni en það sé undarlegra að fréttamiðill ákveði að birta slíka grein.

Enda stenst hún ekki grundvallarkröfur um ritstjórn greina til birtingar á opinberum vettvangi. Að höfundur fleygi fram slíkum fullyrðingum og hann gerir í grein sinni er fullkomlega ábyrgðarlaust og ólíðandi í nútíma lýðræðissamfélagi. Með því að birta slíka grein eru fjölmiðlar að ýta undir fordómafulla og meiðandi orðræðu sem gengur þvert á við siðareglur fjölmiðla, sálfræðinga og heilbrigðisstarfsfólks almennt—en greinin hefur nú í þessum rituðu orðum hlotið hátt í þúsund líkingar á vefnum.“

Því skorar Trans Ísland á ritstjórn Vísis að standa betur vörð um réttindi trans fólks og fari eftir lágmarkskröfum þegar birtar eru greinar á vef þeirra.

Eins er skorað á Landlæknisembættið og Sálfræðingafélag Íslands að taka á þessu máli af ábyrgð og heiðarleika og að afleiðingar verði af þessu grófa broti á siðareglum sálfræðinga og heilbrigðisstarfsfólks.

 

Yfirlýsingin í heild sinni:

 

Yfirlýsing varðandi grein Arnars Sverrissonar, „Kynröskun stúlkna. Hin nýja „móðursýki““ birtist þann 11.ágúst kl. 14:00 á vefnum visir.is.
Ísland er samfélag þar sem mannleg reisn, gagnkvæm virðing og mannréttindi eru í hávegum höfð. Á Íslandi hefur þrotlaus mannréttindabarátta hinsegin fólks áorkað miklu, þó svo að vissulega sé enn langt í land að tryggja hinsegin fólki jöfn réttindi. Með nýlegum lögum um kynrænt sjálfræði voru stigin mikilvæg skref í átt að réttlátara samfélagi, en þar var aðgengi trans fólks gert greiðara að nafna- og kynskráningarbreytingum, ásamt því að aðgengi fólks að trans-tengdri heilbrigðisþjónustu var bætt. Heilbrigðisþjónusta á Íslandi á því að miða við framsæknustu aðferðir og þjónustu í þeim efnum.
Það eru því mikil vonbrigði að sjá heilbrigðisstarfsfólk, líkt og Arnar Sverrison sálfræðing, fara með dylgjur og rangfærslur af verstu gerð í grein sinni sem hann fékk birta á fréttavefnum visir.is þann 11. ágúst síðastliðinn. Höfundur vísar til úreltra kenninga um kynvitund trans fólks, en í grein hans er trans fólk er ranglega sagt vera með raskanir og brenglanir og vísar Arnar í ICD-sjúkdómsflokkunarkerfið sér til stuðnings.
Innan nútíma sálfræði og geðlækninga hefur hinsvegar öllum slíkum skilgreiningum verið hafnað og eru nokkur ár síðan að ICD uppfærði sínar skilgreiningar og er það að vera trans ekki lengur flokkað sem geðröskun af neinu tagi.
Í greininni er trans fólki blandað saman við aðra hópa hinsegin samfélagsins, líkt og við intersex fólk og dragdrottningar, og jafnvel er sís fólk (e. cisgender) talið til trans fólks, en hugtakið lýsir fólki sem er ekki trans. Það er því ljóst að höfundur hefur ekki kynnt sér þessi hugtök til hlítar né er fær um að beita þeim rétt.
Fræðihugtök og orðskýringar höfundar eru í engu samræmi við nútíma skilgreiningar eða heiti og eru sum hugtök hreinn og beinn uppspuni af hálfu höfundar. Það er mikið áhyggjuefni að einstaklingur sem er sálfræðingur fari með slíkt fleipur og haldi á lofti úreltum hugtökum sem eru misvísandi, meiðandi og niðrandi fyrir viðkvæman samfélagshóp. Trans fólk á Íslandi og víðar upplifir enn oft mikla fordóma og útskúfun, og er andlega heilsa þeirra því oft verri af sökum þess. Höfundur bætir gráu ofan á svart með grein sinni, sem er lítið annað en níð gagnvart trans fólki og jaðrar við hatursorðræðu.
Undir lok greinar vísar höfundur til bókar sem á við engin vísindaleg rök að styðjast né nýtur neinnar viðurkenningar innan læknisfræði né sálfræði. Efnið sem vísað er til kemur beint undan rifjum öfgahópa sem leggja kapp á að beita sér gegn aðgengi trans fólks að heilbrigðisþjónustu með hættulegum og meiðandi áróðri.
Heilbrigðisþjónusta fyrir trans börn og unglinga er alltaf byggð á fremstu rannsóknum og aðferðum á því sviði og er það alrangt að slík þjónusta sé veitt án vandlegrar athugunar. Þvert á móti hefur reynst erfitt fyrir foreldri og ungmenni að fá þá þjónustu sem þau þurfa á að halda hérlendis, enda hefur ekki verið starfandi eiginlegt trans heilbrigðisteymi fyrir trans börn og unglinga síðan í byrjun þessa árs.
Það er nær ómögulegt að ímynda sér hver tilgangur höfundar er með skrifum sínum, en það er undarlegt að fréttamiðill sjái sér fært að birta slíka grein, enda stenst hún ekki grundvallarkröfur um ritstjórn greina til birtingar á opinberum vettvangi. Að höfundur fleygi fram slíkum fullyrðingum og hann gerir í grein sinni er fullkomlega ábyrgðarlaust og ólíðandi í nútíma lýðræðissamfélagi. Með því að birta slíka grein eru fjölmiðlar að ýta undir fordómafulla og meiðandi orðræðu sem gengur þvert á við siðareglur fjölmiðla, sálfræðinga og heilbrigðisstarfsfólks almennt—en greinin hefur nú í þessum rituðu orðum hlotið hátt í þúsund líkingar á vefnum.
Við skorum því á ritstjórn visir.is til að standa betur vörð um réttindi trans fólks og að farið sé eftir lágmarkskröfum þegar birtar eru greinar á vef þeirra og að slíkt níð og rógburður sé ekki liðið né birt á vef þeirra. Einnig skorum við á Landlæknisembætti og Sálfræðingafélag Íslands að tekið verði á þessu máli af ábyrgð og heiðarleika og að afleiðingar verði vegna þessa grófa brots á siðareglum sálfræðinga og heilbrigðisstarfsfólks.
Fyrir hönd Trans Íslands, félags trans fólks á Íslandi,
Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir, formaður Trans Íslands
Lokað er fyrir athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu
Fréttir
Í gær

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar
Fréttir
Í gær

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí
Fréttir
Í gær

Næsta skref – byltingakenndar breytingar

Næsta skref – byltingakenndar breytingar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Snorri furðar sig á Byggðastofnun – Sagður gera lítið úr þeim sem ekki tala íslensku

Snorri furðar sig á Byggðastofnun – Sagður gera lítið úr þeim sem ekki tala íslensku
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Uppnám á Íslandsmótinu í skák – Stórmeistari hættir þátttöku út af hávaða í kylfingum

Uppnám á Íslandsmótinu í skák – Stórmeistari hættir þátttöku út af hávaða í kylfingum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réðst á dreng sem ætlaði að gera dyraat

Réðst á dreng sem ætlaði að gera dyraat
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sigmar harðorður um stöðuna hér á landi – „Þetta er hálf­gerð sturlun“

Sigmar harðorður um stöðuna hér á landi – „Þetta er hálf­gerð sturlun“