Talsmaður Félags eggja-, svína- og kjúklingabænda á Íslandi, Sigmar Vilhjálmsson, betur þekktur sem Simmi Vill, birti í gær pistil á Vísi þar sem hann ræddi ástandið og áhrif þess á samfélagið.
Sigmar sagði að fyrst og fremst skiptu heilsa, vinir og ættingjar mestu máli, en á eftir þeim þáttum kæmi sjálfstæði og sjálfbærni landsins okkar.
„Í Covid faraldrinum sem við búum við þessa dagana þá leitar hugur margra að raunverulegum gildum lífsins. Flest erum við sammála um að heilsa, fjölskylda og nákomnir vinir eru það sem skiptir mestu máli.
Einnig hefur hugurinn leitað til sjálfstæðis og sjálfbærni. Ekki bara fjölskyldunnar og heimilisins, heldur samfélagsins alls. Við sem þjóð áttum okkur betur á því núna hvað það skiptir miklu máli að vera sjálfsstæð og sjálfbær í okkar ákvörðunum. Okkur er líka ljóst á svona tímum úr hverju við erum gerð. Við sjáum hvað við erum mögnuð saman. Við stöndum saman og göngum saman í takt. Við hlíðum Víði og náum skjótum árangri saman. Lykilatriðið í þessum árangri er að við erum öll að taka þátt. Við lítum á það sem okkar samfélagslegu ábyrgð.“
Simmi velti þessu hugtaki, samfélagsleg ábyrgð fyrir sér. Hann segir að mörg fyrirtæki noti þetta hugtak til að líta vel út í augum almennings, án þess þó að vera samfélagslega ábyrg. Hann segir að samfélagsleg ábyrgð snúist um ávinning samfélagsins.
„Samfélagsleg ábyrgð er hugtak sem er mikið notað af fyrirtækjum. Oft slá fyrirtæki um sig með þessu hugtaki án þess að raunverulega vera samfélagslega ábyrg.
Samfélagsleg ábyrgð snýst ekki um að fyrirtæki styrki gott málefni heldur að það skili ávinningi til samfélagsins, ávinningi sem verður meðal annars til við endurnýtingu á auðlindum sem fyrirtækin nota í rekstri sínum, atvinnuskapandi, skapi störf í tengslum við sína starfssemi og auki þannig hagsæld samfélagsins í heild en ekki bara hag hluthafa.“
Sigmar nefnir eina starfsstétt sem hann telur einstaklega samfélagslega ábyrga, en það eru bændur vegna þess að þeir stuðla að fæðuöryggi. Sigmar segir að standa þurfi vörð um íslenska matvælaframleiðslu, sem er ógnað af innfluttum matvælum.
„Íslenskir bændur eru dæmi um samfélagslega ábyrga starfsstétt. Þeirra ræktun skilar ótal jaðarstörfum til samfélagsins á sama tíma og þeirra framlag til samfélagsins tryggir fæðuöryggi. Þessu þarf að halda til haga og standa þarf vörð um íslenska matvælaframleiðslu.
Það sem ógnar bændum og matvælaframleiðendum mest er innflutningur á matvælum sem við erum sjálfbær í að framleiða. Það sem ógnar bændum, ógnar okkur öllum. Það er þjóðaröryggi að vera sjálfbær í matvælaframleiðslu. Góðu fréttirnar eru þær að við sem þjóð getum tryggt þetta öryggi með vali okkar í verslunum. Að velja Íslenskt framyfir innflutt er okkar framlag í að tryggja þetta öryggi. Einnig getum við krafist þess að stjórnvöld standi betur vörð um matvælaöryggi.“
Hann segir mikilvægt að stjórnvöld standi vörð um sjálfbærni íslands og verndi bændurna. Hann segir að hlutverk bænda verði að hafa í huga í þessum utanríkismálum þegar samningar eru gerðir.
Sigmar segir að um hagsmunamál allrar íslensku þjóðarinnar sé að ræða og að verja íslenskt atvinnulíf.
„Stjórnvöld hafa völd til að standa vörð um sjálfbærni þjóðarinnar í matvælaframleiðslu m.a. með milliríkjasamningum, búvörusamningum og tilslökunum á gjöldum er kemur að uppbyggingu og endurnýjun framleiðslubúa. Núverandi EES samningur er í uppnámi, Bretland er gengið úr Evrópusambandinu og því er klár forsendubrestur á núgildandi EES samningi. Utanríkisráðherra ætti að vera byrjaður í viðræðum við Evrópusambandið um nýjan samning í ljósi nýrra forsendna. Nýr samningur ætti að standa betur vörð um íslenskan landbúnað með mun skilgreindari skilmálum um innflutning frá Evrópu til Íslands. Skilgreina þarf betur hvað má flytja inn til landsins án tolla og hindra ætti innflutning á vörum sem við erum algjörlega sjálfbær í að framleiða sjálf.
Þetta er hagsmunamál okkar allra og það er okkar réttur og krafa að stjórnvöld standi vörð um okkar hag. Þangað til höfum við valið í versluninni: innflutt eða íslenskt.
Stöndum vörð um íslenskt atvinnulíf, íslenskan landbúnað og íslenskt sjálfsstæði. Ekki bara núna, heldur alltaf.“