Orka Ventures, dótturfyrirtæki Orka Holding, kynnir í dag fyrirframgreidd Orka Mastercard greiðslukort fyrir íslenskum notendum.
,,Þetta er stór dagur hjá okkur í Orka. Allir viðskiptavinir okkar geta nú forskáð sig fyrir korti á orkacard.com,” segir Leifur Haraldsson, einn af stærstu eigendum Orka Holding um málið.
Vefsíðan orkacard.com er nú opin öllum til forskráningar að Orka korti. Umsækjendur munu svo fá upplýsingar um nýja möguleika sem ný byltingakennd greiðslukortaþjónusta Orka mun bjóða upp á.
,,Til viðbótar þekktum möguleikum hefðbundinna plast greiðslukorta mun Orka bjóða upp á fjölgjaldmiðla möguleika án viðbótarkostnaðar og þægilegt smáforrit sem verður aðgengilegt í farsímum til að halda utan um persónuleg fjármál viðskiptavina. Við erum mjög spennt fyrir því að bjóða þessa og fleiri möguleika fyrir umsækjendur okkar á næstu vikum. Við erum búin að opna fyrir skráningu á öllum Norðurlöndunum og nú þegar hafa hátt í 2000 aðilar skráð sig fyrir korti á Íslandi. Það er því um að gera að skrá sig fyrir korti,” bætir Leifur við.