Hafliða Breiðfjörð Guðmundssyni, framkvæmdastjóra Fótbolta.net, mætti einkennleg sjón þegar hann fór í vinnuna í dag, en þá hafði strætisvagni verið lagt fyrir framan íbúðarhúsnæði hans í Grafarvogi.
Frá þessu greindi Hafliði í færslu á Twitter og birti mynd með, auk tveggja spurninga: „Er planið orðið fullt hjá þeim? Hvað gerir maður í svona sem formaður húsfélagsins?“
Skil ekki alveg afhverju @straetobs er farið að nota bílastæði fyrir utan blokkina mína til að geymslu. Er planið orðið fullt hjá þeim? Hvað gerir maður í svona sem formaður húsfélagsins? pic.twitter.com/JAse5u3sjy
— Hafliði Breiðfjörð (@haflidib) April 8, 2020
DV hafði samband við Hafliða sem hafði lítið um málið að segja, en sagði þó að strætisvagninn væri farinn, þó hann hefði örugglega verið á staðnum í nokkra tíma. Hafliða virtist finnast málið fyndið.
„Þessi tiltekni vagnstjóri á greinilega bara heima þarna í Grafarvoginum og hann hefur ákveðið að læðast þarna inn í hádegismat. Svo hefur hann verið kominn aftur í keyrslu um tvö, en við vorum nú sammála um það, ég og yfirmaðurinn hans, að það þyrfti að finna einhverja betri staði ef hann ætlar að gera þetta svona. Við erum ekki mjög hrifnir af því að hann sé að leggja bílnum í svona íbúðarhverfi. Það væri gott að finna fína lausn á því höfuðstöðvarnar þeirra eru alla leið upp í Hafnarfirðinum Hann var bara að reyna að hafa það þægilegt og stokkið inn,“
Þetta sagði Guðmundur Heiðar Helgason, upplýsingafulltrúi Strætó, um málið í samtali við DV. Hann sagði að þessi tiltekna leið, 31, væri í hléi um hádegisleytið og því hefði bílstjórinn líklega nýtt sér það og farið í mat.