Lögreglan á Höfuðborgarsvæðinu hafði í gærkvöldi og í nótt afskipti af fimm ökumönnum sem grunaðir eru um umferðarlagabrot. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu.
Lögregla stöðvaði ökumann á Sæbraut á fimmta tímanum í morgun og er ökumaður grunaður um ölvun við akstur. Aðeins 20 mínútum seinna var annar ökumaður stöðvaður á Snorrabraut og er ökumaður hennar grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og ítrekaðan akstur án gildra ökuréttinda.
Í Hafnarfirði var kona handtekin rétt fyrir miðnætti grunuð um að valda umferðaróhappi og akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna.
Í Kópavogi voru afskipti höfð af ökumanni bifreiða rétt fyrir tíu í gærkvöldi. Bifreið hans hafði mælst á 125 km/klst þar sem hámarkshraði er 50 km/klst. Ökumaður var færður á lögreglustöð og sviptur ökuréttindum til bráðabirgða.
Bifreið var stöðvuð skömmu eftir miðnætti í Árbæ og er ökumaður hennar grunaður um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna og án gildra ökuréttinda.
Athygli vegur að í dagbók lögreglu er ekki greint frá afskiptum af fólki við skemmtanahald í heimahúsum eða á öldurhúsum borgarinnar, en slíkar frásagnir eru að jafnaði algengar um helgar.