Alzheimersamtökin vara á Facebook við svikahrappi sem siglir undir fölsku flaggi. „VARÚÐ! Óprúttinn náungi hefur verið að hringja í fólk og þykjast vera að safna fé fyrir samtökin. Er beðið um kennitölu svo hægt sé að stofna kröfu í heimabanka,“ segja samtökin á Facebook.
Samtökin vilja vekja athygli á því að þessi maður sé ekki á vegum þeirra. „ATHUGIÐ að þetta er EKKI á vegum samtakanna og hefur þetta verið tilkynnt til lögreglu. Endilega deilið.“