fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024
Fréttir

Loftur þurfti ekki að deyja – Lést úr magasári: „Hann hefði orðið 40 ára“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 30. ágúst 2019 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Loftur Gunnarsson hefði átt afmæli þann 11. september 2019. Hann hefði orðið 40 ára. Svo varð hins vegar ekki þar sem Loftur lést á götum Reykjavíkur einungis 32 ára. Minningarsjóður hans segir aðstæður utangarðsfólks til skammar en samtökin standa fyrir tónleikum 11. september næstkomandi.

„Það á engin að deyja á kaldri götunni.  Aðstæður utangarðsfólks á Íslandi eru að mörgu leyti hörmulegar og þær eru einnig brot á réttindum þeirra! Allir fæðast jafnir og við sem samfélag eigum að aðstoða þá sem eru í neyð.  Það er auðvelt að líta framhjá þessum hópi samfélagsins, afskrifa hann og gleyma honum. Þessi hópur nýtur ekki virðingar heldur verður hann fyrir fordómum og skilningsleysi. Hann lætur aldrei í sér heyra, röltir þögull um bæinn og lætur lítið fyrir sér fara, biður ekki um neitt og á sér engan málsvara sem getur þrýst á kerfið,“ segir í færslu samtakanna á Facebook.

Ríkið brýtur á rétti utangarðsfólks

Samtökin segja nauðsynlegt að gera meira fyrir þennan hóp. „Síðustu misserin hefur umræðan um stöðu utangarðsfólks verið nokkuð áberandi eftir að umboðsmaður Alþingis skilaði áliti um málið. Einnig vakti athygli skýrsla velferðarvaktarinnar, þar sem góðar tillögur til að bæta aðstöðu utangarðsfólks voru kynntar. Að mati okkar sem stöndum að Minningarsjóði Lofts Gunnarssonar er staðreyndin sú að það mikilvægasta sem kemur fram í úttekt umboðsmanns Alþingis er viðurkenningin á því að ríki og sveitarfélög séu einfaldlega að brjóta á rétti utangarðsfólks með því að sniðganga lögbundna þjónustu sem það hefur rétt á. Það er verið að brjóta almenn lög, lög stjórnarskrárinnar og einnig er verið að brjóta á fjölþjóðlegum mannréttindaskuldbindingum,“ segir í færslunni.

Fólk deyr á götunni

Samtökin segja að það sé hægt að gera mikið meira fyrir fólk í þessari stöðu. „Það er krafa okkar að sú vinna sem þarf til til þess að leiðrétta þetta hefjist nú þegar. Við vitum að það er ekki hægt að bjarga öllum sem lenda utangarðs. Hinsvegar eru mörg dæmi um einstaklinga sem hafa verið á götunni og nýtt sér þau úrræði sem í boði eru og komið sér aftur inn í samfélagið. Hversdagshetjur sem hafa með dyggri aðstoð breytt lífi sínu. Hinir, sem ekki ná sér upp, eiga þá réttmætu og lagalegu kröfu að þeim séu skapaðar mannsæmandi aðstæður og aðbúnaður til að gera líf þeirra léttbærara. Dæmi eru um einstaklinga sem hafa sótt um og fengið samþykkta aðstoð með varanlegt húsnæði en samt beðið meira en áratug eftir því og bíða enn. Mörg dæmi eru um dauðsföll á meðan beðið er eftir aðstoð. Einnig er sorglegur sá raunveruleiki að fólk deyr á götunni vegna þess að öll rúm neyðarvistunarinnar í gistiskýlum voru upptekin þá nóttina, því ekki komast allir að þar,“ segir í færslu samtakana.

Lést úr magasári

Samtökin segja að alltof litlum fjármunum sé varið í að hjálpa þeim sem lenda í þessum aðstæðum. „Við erum ekki að biðja um neitt annað en að þessi þjóðfélagshópur fái lögbundna aðstoð. Við trúum því að við lifum í samfélagi þar sem við hugsum um okkar fólk. Okkur langar að taka það fram að starfsfólk Gistiskýlisins, Konukots og á fleiri stöðum er að vinna frábært starf við mjög erfiðar aðstæður þar sem alltof litlum fjármunum er varið í þetta málefni,“ segir í færslunni.

Að lokum benda samtökin á að Loftur hefði ekki þurft að deyja, sjúkdómur hans hafði verið hægt að meðhöndla. „Loftur Gunnarsson svaf á götunni þegar ekki var pláss í Gistiskýlinu. Hann lést 32 ára gamall. Hann lést úr magasári sem auðvelt hefði verið að meðhöndla.  Á þeim tíma sem hann lést var ekki auðvelt fyrir utangarðsfólk að verða sér úti um fordómalausa læknisaðstoð. Fjöldi utangarðsfólks hefur tvöfaldast á síðustu fimm árum! Minningarsjóður Lofts Gunnarssonar hefur frá stofnun hans árið 2012 keypt fjölda rúma, sjónvörp, húsgögn, fatnað og margt fleira inn í hin ýmsu úrræði sem að utangarðsfólk notar og starfar sjóðurinn ötullega eftir markmiði sínu að bæta hag þessa hóps. Loftur Gunnarsson hefði átt afmæli þann 11. september 2019. Hann hefði orðið 40 ára.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Adam ákærður fyrir stórfelld brot

Adam ákærður fyrir stórfelld brot
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Bjarkey strax undir miklum þrýstingi: „Það hefur gríðarlegar afleiðingar fyrir ráðherra að fara ekki að lögum“

Bjarkey strax undir miklum þrýstingi: „Það hefur gríðarlegar afleiðingar fyrir ráðherra að fara ekki að lögum“
Fréttir
Í gær

Málinu sem klauf kirkju aðventista vísað frá – Lambafell og Litla-Sandfell flutt til sementsgerðar í Þýskalandi

Málinu sem klauf kirkju aðventista vísað frá – Lambafell og Litla-Sandfell flutt til sementsgerðar í Þýskalandi
Fréttir
Í gær

Japanar óttast fall Úkraínu og krísu í Asíu ef stuðnings Bandaríkjanna nýtur ekki við

Japanar óttast fall Úkraínu og krísu í Asíu ef stuðnings Bandaríkjanna nýtur ekki við
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jóhann á flótta undan réttvísinni – Ákærður fyrir vörslu og dreifingu barnaníðsefnis en mætir ekki fyrir dóm

Jóhann á flótta undan réttvísinni – Ákærður fyrir vörslu og dreifingu barnaníðsefnis en mætir ekki fyrir dóm
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Heiða neitaði að spila lag með Hallbirni Hjartarsyni – „Næsti hlustandi sem náði inn öskraði á mig“

Heiða neitaði að spila lag með Hallbirni Hjartarsyni – „Næsti hlustandi sem náði inn öskraði á mig“