fbpx
Miðvikudagur 14.maí 2025
Fréttir

Guðmundur segir „flugviskubit“ vera dæmi um hræsni elítunnar: „Það má skammast sín“

Ritstjórn DV
Mánudaginn 13. maí 2019 10:07

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðmundur Brynjólfsson, rithöfundur og djákni, segir í Bakþanka Fréttablaðsins að hið svokallaða „flugviskubit“, það er að segja að fólk eigi að forðast flug vegna loftslagsbreytinga, sé einungis fyrir alþýðuna. Elítan sem talar mest um loftslagsvandan flýgur sem aldrei fyrr.

„Það má vera öllum ljóst hvaða fólk það er sem á að vera með stöðugt „flugviskubit“ eða þjakað af „flugskömm“ – það er skríllinn. Ég og þú. Hin, þessi góðu sem í löngu máli og flúruðu segja okkur frá loftslagsvandanum, ætla sér ekki að fljúga neitt minna en þau hafa gert hingað til. Nei, þau ætla heldur að bæta í. Þannig flaug starfsfólk Umhverfisstofnunar helmingi fleiri ferðir til útlanda í fyrra en árið 2015. Sú sem stýrir því batteríi (gott orð batterí í þessu samhengi) segir að þau vilji endilega fljúga minna. En samt ætla starfsmenn hennar alls ekki að fljúga minna á þessu ári, heldur meira. Starfsmennirnir flugu 150 ferðir í fyrra,“ segir Guðmundur.

Hann segir að fólk sem ferðast sárasjaldan eigi að skammast sín en ekki þeir sem fljúga oft á ári. „En ég má skammast mín. Ég flýg til útlanda tvisvar til þrisvar á ári hverju. Enda er ég skepna. Ég er skepna og umhverfis­óþverri líkt og NATO-flugvélarnar sem hér æfa í boði Vinstri grænna (alveg sérstaklega) og hinna orkupakkanna í ríkisstjórninni. Hér spúa NATO-flugvélar eldi og brennisteini en það talar ekki nokkur maður um hvað það sé á við margar ferðir til Tenerife. Það er bara talað um mengun Tenerife-ferða þegar óbreytt alþýðufólk ætlar sér þangað í langþráð frí – það má skammast sín,“ segir Guðmundur.

Hann segir að þetta sama fólk vilji þó fjölga ferðamönnum til Íslands. „Og öfugmælavísnasmiðirnir sem öllu ráða sjá ofsjónum yfir því að fólk fer í helgarferðir til Dublin eða Hamborgar, við þessi venjulegu, en vilja um leið endilega fjölga ferðamönnum og „vinna markvisst að því“ – líklega eiga þeir ferðamenn að koma fótgangandi. Kannski eru bundnar vonir við að þeir geti síðar komið í gegnum sæstreng. En auðvitað bara með því skilyrði að Alþingi samþykki þá gjörð. En samþykktir Alþingis eru einhver mesta hindrun sem hægt er að hugsa sér. Gott dæmi þar um eru smálánafyrirtækin,“ segir Guðmundur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Edda minnist Lalla Johns – „Lalli var alltaf blíðan uppmáluð, brosandi gleðigjafi og góður við allt og alla“

Edda minnist Lalla Johns – „Lalli var alltaf blíðan uppmáluð, brosandi gleðigjafi og góður við allt og alla“
Fréttir
Í gær

Uggandi yfir uppsögnum: „Þjóðminjasafn án fornleifafræðinga“

Uggandi yfir uppsögnum: „Þjóðminjasafn án fornleifafræðinga“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kom fyrir myndavélum á klósetti Airbnb íbúðar sinnar – Vildi bera getnaðarlimi gestanna saman við sinn

Kom fyrir myndavélum á klósetti Airbnb íbúðar sinnar – Vildi bera getnaðarlimi gestanna saman við sinn
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sólveig Anna lætur „megins-straums femínista“ heyra það – Vinsælt áhugamál kvenna sem hafi náð jafnrétti

Sólveig Anna lætur „megins-straums femínista“ heyra það – Vinsælt áhugamál kvenna sem hafi náð jafnrétti