fbpx
Föstudagur 02.janúar 2026
Fréttir

Eltihrellir leitar að húsnæði á Akureyri: „Gerum honum erfitt fyrir og vörum nýja nágranna við“

Erla Dóra Magnúsdóttir
Fimmtudaginn 18. apríl 2019 13:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eltihrellirinn Valbjörn Magni Björnsson eða Magni Línberg eins og hann kýs að kalla sig í dag, leitar nú húsnæðis á Akureyri. Íbúi á svæðinu hefur á samfélagmiðlum reynt að vara við honum og hvetur til sameiginlegs átaks Akureyringa að gera honum erfitt fyrir.

„Vil vekja athygli á að nú er þessi náungi að leita logandi ljósi að húsnæði til leigu hér í Innbænum þar sem hann verður húsnæðislaus um mánaðamótin maí/júní.
Gerum honum erfitt fyrir og vörum nýja nágranna við.“

Ofangreint skrifar Akureyringur í íbúahópa bæjarins þar sem hún hvetur til þess að Magna verði gert erfitt að koma sér fyrir í bænum þeirra. Magni var ítrekað til umfjöllunar í DV fyrir þremur árum en þar var greint frá því að þrjár konur hefðu sakað Magna um ofsóknir, kúgun og kynferðisbrot. Hann sat fyrir fyrrverandi ástkonum og ofsótti með sífelldum símhringingum, með því að elta þær á almannafæri og með því að áreita fjölskyldu, vini og kunningja.

Eftir að DV greindi frá ofsóknum Magna flúði hann land, en birtist svo aftur fyrir ári síðan þegar hann flutti í götuna þar sem eitt fórnarlamba hans bjó, en það var einmitt á Akureyri.

Konurnar sem sökuðu Magna um alvarleg brot eru Hrefna I. Jónsdóttir, Fanney Björk Ingólfsdóttir og fyrrverandi sambýliskona Magna, Svanhildur Sigurgeirsdóttir sem starfar á spítalanum á Akureyri

Í samtali við DV á síðasta ári sagði Svanhildur: „Hann fer í göngutúra framhjá húsinu mínu. Hann ekur framhjá og stöðvar bíl sinn en heldur svo áfram. Það er lítið hægt að gera við því skilst mér, hann útskýrir það með því að hann eigi heima í götunni. Hann flutti auðvitað hingað til að komast sem næst mér“

DV fékk aðgang að skilaboðum sem hann sendi Fanney þegar hún var aðeins 15 ára gömul, en þá var Magni sjálfur rétt tæplega fimmtugur.

„Ætlarðu að leyfa mér að ríða þér eins og þú lofaðir. […] „Ertu búin að ríða þessari stelpu sem þú sagðir mér frá?“ […] Bráðum rennur upp næst síðasti dagur.“ Um þessi síðustu skilaboð sagði Fanney: „… þarna hafði hann í marga daga „talið niður“ þar sem að eitthvað hræðilegt myndi koma fyrir mig þegar niðurtalningu myndi ljúka. Ég sat heima hjá mér í marga daga og bjóst við því versta.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Sigurður Kári segir Sjálfstæðisflokkinn eina hægri flokkinn – Framtíðarsýn Miðflokksins sé fátækleg

Sigurður Kári segir Sjálfstæðisflokkinn eina hægri flokkinn – Framtíðarsýn Miðflokksins sé fátækleg
Fréttir
Í gær

Segir óásættanlega fordóma hafa verið í Áramótaskaupinu – „Ósmekklegt, óviðeigandi og beinlínis ljótt“

Segir óásættanlega fordóma hafa verið í Áramótaskaupinu – „Ósmekklegt, óviðeigandi og beinlínis ljótt“
Fréttir
Í gær

Þjóðin virðist almennt ánægð með Skaupið – „Hvað þær ná okkur skemmtilega“

Þjóðin virðist almennt ánægð með Skaupið – „Hvað þær ná okkur skemmtilega“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tilefni til að Miðflokkurinn bregðist við tugum myndbanda með hreinu kynþáttahatri – „Virðist vera sérstakt markaðsátak“

Tilefni til að Miðflokkurinn bregðist við tugum myndbanda með hreinu kynþáttahatri – „Virðist vera sérstakt markaðsátak“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

70% hlynnt því að samfélagsmiðlar verði bannaðir börnum

70% hlynnt því að samfélagsmiðlar verði bannaðir börnum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Lögregla minnir á reglur um flugelda – Bannað að skjóta upp á nóttunni

Lögregla minnir á reglur um flugelda – Bannað að skjóta upp á nóttunni
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Hagar veita 20 milljóna styrki til matarfrumkvöðla

Hagar veita 20 milljóna styrki til matarfrumkvöðla