fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fréttir

Annáll – September – Barnaníðingar og Braggamálið

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 31. desember 2019 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í september kenndi ýmissa grasa í fréttum – hér eru þær helstu.

Sjá einnig: Annáll janúar / Annáll febrúar / Annáll mars / Annáll apríl / Annáll maí / Annáll júní / Annáll júlí / Annáll ágúst

Barnaníðingakortin

Miklar umræður sköpuðust í kringum eintök helgarblaðs DV í september, en í þeim var birt kort og ítarleg umfjöllun um íslenska barnaníðinga. DV birti ekki full heimilisföng barnaníðinga heldur einungis í hvaða landshluta eða hverfum þeir búa, birti viðtöl við foreldra barna sem höfðu lent í klóm barnaníðinga og velti því upp hvort almenningur ætti að fá upplýsingar um hagi dæmdra barnaníðinga.

Hatari í bobba

Eurovision-stjörnurnar í Hatara komust í hann krappan en hljómsveitinni var stefnt fyrir samningsbrot. Wiktoria Joanna Ginter, skipuleggjandi tónlistarhátíðarinnar Iceland to Poland, hélt því fram að samið hefði verið við Hatara í desember um að koma fram á hátíðinni. Nokkrum mánuðum seinna höfðu þeir öðlast heimsfrægð vegna þátttöku sinnar í Eurovision og þá sagði hún að þeir hefðu viljað fá meiri peninga fyrir að koma fram. Skaðabótakrafan hljóp á milljónum og var málið þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í september.

Hatari
Hatari. Mynd: Eurovision.tv

Atli vann

Aðalmeðferð í máli Atla Rafns Sigurðssonar gegn Leikfélagi Reykjavíkur og Kristínu Eysteinsdóttur borgarleikhússtjóra hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur, en Atli fór í mál við leikfélagið því hann taldi ekki vera rétt staðið að uppsögn hans. Atla var sagt upp vegna þess að nokkrar konur kvörtuðu við Kristínu og sögðu að Atli hefði áreitt þær kynferðislega. Við aðalmeðferð sagðist Atli telja að uppsögn hans hefði komið til vegna lygasögu áhrifamanns innan leikhússins, leikarans og leikstjórans Bergs Þórs Ingólfssonar. Atli vann málið en Bergur vildi ekki tjá sig um þessar ásakanir í hans garð.

Atli Rafn. Mynd: Eyþór Árnason

Braggamálið tók nýja stefnu

Veitingastaðurinn Bragginn Bar og Bistro skellti í lás en Háskólinn í Reykjavík leigði braggann af Reykjavík og framleigði húsnæðið til veitingahússins í júní. Forsvarsmaður Braggans Bistro greindi frá því stuttu fyrir lokun að óvægin umfjöllun um frammúrkeyrslu Reykjavíkurborgar í Braggamálinu hefði ekki haft áhrif á rekstur veitingahússins. Braggamálið svonefnda var eitt af stærstu fréttamálunum árið 2018. Kostnaður við að gera upp bragga í Nauthólsvík hljóp hundruðum milljóna fram úr áætlunum og hefur meirihlutinn í borgarstjórn Reykjavíkur sætt harðri gagnrýni vegna málsins. Samkvæmt innri endurskoðun Reykjavíkurborgar var kostnaðareftirliti ábótavant og bæði reglur, lög og verkferlar virtir að vettugi.

Bragginn.

Tímamótasöfnun

Athafnakonan og gleðigjafinn Margrét Erla Maack hrinti af stað söfnun fyrir eigin fæðingarorlofi, en hún eignaðist nýlega sitt fyrsta barn. Margrét Erla hóf söfnunina til að vekja athygli á brotalömum í fæðingarorlofskerfinu. „Í fyrsta og mikilvægasta lagi að gera mér kleift að sinna barninu mínu fyrstu mánuði lífs þess. Í öðru lagi að benda á hversu flókið fæðingarorlofskerfið er fyrir þau sem kjósa að vinna sjálfstætt og flæða á milli verkefna. Eins og staðan er í dag er fæðingarorlof lúxus sem foreldrar í frumkvöðlastarfi og sjálfstætt starfandi geta takmarkað nýtt sér. Það álag sem óskýr svör hafa á barnshafandi konur ekki líðandi,“ sagði hún. Hún náði báðum markmiðum sínum.

Margrét Erla Maack. Mynd: DV/Hanna

Handval lögreglunnar

Stundin greindi frá því að fimm af tíu yfirstjórnendum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu gegna stjórnunarstöðu sem þeir fengu án auglýsingar. GRECO, samtök ríkja gegn spillingu, hafa gagnrýnt það ítrekað að „handvalið“ sé í stöður innan lögreglunnar á Íslandi. Yfirstjórnendurnir sem voru ráðnir án auglýsingar eru Ásgeir Þór Ásgeirsson yfirlögregluþjónn, Helgi Valberg Jensson aðallögfræðingur, Karl Steinar Valsson yfirlögregluþjónn, Sigríður Björk Guðjónsdóttir lögreglustjóri og Theodór Kristjánsson yfirlögregluþjónn. Sá síðastnefndi er bróðir Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, fyrrverandi innanríkisráðherra, en hún skipaði Sigríði Björk lögreglustjóra.

Sigríður Björk.

Ákærðir fyrir smygl

Brynjar Steingrímsson, Dagur Kjartansson og Halldór Anton Jóhannesson voru ákærðir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Allir þrír eru fremur ungir, Brynjar og Dagur eru 23 ára og Halldór er 21 árs. Þeir eru sakaðir um hafa saman staðið að innflutningi á ríflega 16 kílóum af kókaíni. Í ákæru kemur fram að Brynjar hafi skipulagt smyglið meðan Dagur og Halldór hafi verið burðardýrin. Samkvæmt ákæru fóru þeir tveir til Frankfurt síðastliðinn maí. Þaðan tóku þeir lest til Amsterdam og hittu óþekkta einstaklinga um borð í lestarvagni, allt samkvæmt fyrirmælum Brynjars, að því er segir í ákæru.

Harmsaga móður

Elva Christina, 24 ára, þriggja barna móðir, missti forræði yfir yngsta barni sínu þegar barnið var nokkurra daga gamalt. Elva sagði að Barnavernd ætlaði að taka nýfædda dóttur hennar og senda til barnsföður hennar í Noregi. Hún sagði hann ekki hafa áhuga á að taka barnið, hann væri einstæður faðir og alkóhólisti. Elva byrjaði ung að drekka og fór í fyrsta sinn inn á Vog þegar hún var 14 ára, að verða 15 ára. Hún varð ólétt að elsta barni sínu, dreng sem er átta ára, og missti forræði yfir honum haustið 2016. Málið vakti mikla athygli á sínum tíma en móðir Elvu, Helena Brynjólfsdóttir, rændi drengnum frá Noregi sama ár. Það gerði hún þegar þær fréttir bárust að það ætti að taka drenginn af Elvu og vista hjá fósturfjölskyldu til átján ára aldurs. Síðan fékk barnsfaðir drengsins, sem býr í Danmörku, forræði yfir honum. Miðjubarnið, drengur, er tveggja ára og flutti barnsfaðir hennar með drenginn til Noregs með samþykki Elvu í apríl 2019.

Mæðgurnar ásamt vinkonu Elvu, Soffíu Dröfn. Myndir: Soffía Dröfn Snæbjörnsdóttir

Fegurst allra

Birta Abiba Þórhallsdóttir var krýnd Miss Universe Iceland eftir val alþjóðlegrar dómnefndar. Birta var fulltrúi Íslands í Miss Universe-keppninni í desember og komst í topp tíu.

Birta Abiba.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Lögregla kölluð út vegna tjaldbúða í miðborginni

Lögregla kölluð út vegna tjaldbúða í miðborginni
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Fordæmalaus staða gæti komið upp á gosstöðvunum á Reykjanesskaga – „Þetta er fyrsta skiptið sem við sjáum svona“

Fordæmalaus staða gæti komið upp á gosstöðvunum á Reykjanesskaga – „Þetta er fyrsta skiptið sem við sjáum svona“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Næsta skref – byltingakenndar breytingar

Næsta skref – byltingakenndar breytingar