fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Ásdís Rán og fjársvikamálið – Bíður eftir símtali frá meintum fjársvikara: „Ég vil ekki trúa því að hún sé dáin“

Auður Ösp
Fimmtudaginn 28. nóvember 2019 20:00

Ignatova og Ásdís Rán á góðri stundu. Ljósmynd/Facebook

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslenska fyrirsætan og athafnakonan Ásdís Rán Gunnarsdóttir er flækt í eitt stærsta fjársvikamál síðari ára sem teygir sig til 175 landa. Samkvæmt bandarísku alríkislögreglunni, FBI, náði besta vinkona Ásdísar Ránar, búlgarska athafnakonan Ruja Ignatova, að svíkja út tæpa þúsund milljarða íslenskra króna á heimsvísu áður en hún hvarf sporlaust í október árið 2017. Ekkert hefur spurst til hennar síðan þá og hafa lögregluyfirvöld víðs vegar í heiminum reynt að hafa uppi á henni, líkt og vinkona hennar Ásdís Rán en hún er andlit fyrirtækisins sem talið er að standi að baki svikamyllunni.

Ásdís og Ruja hafa verið áberandi í sviðsljósinu í Búlgaríu. Ljósmynd/Inlife.bg.

Loftbóla sem sprakk

Um er að ræða hina meintu rafmynt OneCoin sem var kynnt til sögunnar árið 2014 sem arftaki Bitcoin, vinsælustu rafmyntar í heimi. Fyrirtækið, sem enn ber nafn OneCoin í nokkrum löndum, átti höfuðstöðvar í Búlgaríu og voru fjárfestar laðaðir að verkefninu með loforðum um gríðarlegan hagnað þegar rafmyntin færi á almennan markað. Samkvæmt bandarískum dómskjölum var svikamyllan sett upp sem nokkurs konar píramídasvindl. Fjárfestar sem keyptu sig inn í „verkefnið“ gátu þannig fengið meira fyrir peninginn, fleiri rafmyntir, ef þeir gátu selt öðrum hugmyndina. Bandaríska alríkislögreglan segir þó að aldrei hafi nein raunveruleg rafmynt legið að baki OneCoin. Fyrirtækið hafi verið rekið á lygum og blekkingum frá upphafi. Uppblásin loftbóla sem á endanum sprakk.

Svo virðist sem OneCoin hafi ekki tekist að ná fótfestu hér á landi en samkvæmt heimildum DV gengu sölumenn á vegum fyrirtækisins í hús hér á landi á síðasta ári og buðu fólki að fjárfesta í OneCoin. DV hefur undir höndum tölvupóst sem sendur var á kaupendur þar sem þeir áttu að geta fundið svör við væntanlegum spurningum.

Hin meinta rafmynt fékk ævintýralega góðar viðtökur úti um allan heim og það var ekki síst fyrir tilstilli eigandans, hinnar heillandi og sprenglærðu Ruja Ignatova, sem tugir þúsunda einstaklinga, fyrirtækja og félagasamtaka tóku þátt og fjárfestu. Ruja flaug þannig heimshorna á milli og hélt glæsilegar veislur fyrir ríka og fræga fólkið á sama tíma og hún kynnti rafmyntina. Sú sem skipulagði flestar þessar veislur, var kynnir í þeim flestum, starfsmaður OneCoin og andlit fyrirtækisins var Ásdís Rán. Íslenska athafnakonan segist þó ekkert hafa starfað fyrir fyrirtækið frá því vinkona hennar hvarf árið 2017.

Ásdís Rán birti þessa mynd af þeim stöllum rúmlega tveimur mánuðum áður en Ruja hvarf. Ekkert hefur sést til hennar síðan. Ljósmynd/Facebook

„Ég veit ekki hvort hún sé dáin eða ekki. Ég vil trúa því að hún hafi þurft að láta sig hverfa af einhverjum ástæðum og sé vonandi á einhverri eyðieyju einhvers staðar og sé að bíða eftir því að sannleikurinn komi í ljós,“ segir Ásdís Rán, en hún trúir því ekki að um píramídasvindl sé að ræða.

„Þetta er ekki einhver fjársvikamylla. Þetta er bara blásið upp eins og Bitcoin á sínum tíma. Það er alveg á línunni hvort þetta sé löglegt eða ólöglegt, en því hefur verið haldið fram að þetta sé löglegt og það má alveg deila um það. Það sama á við um mörg píramídafyrirtæki yfirhöfuð.“ Hún vill ekki svara því hvort hún hafi sjálf fjárfest í ævintýrinu.

Segist vera „ein af fjölskyldunni“

Svo það komi skýrt fram þá á Ásdís Rán ekki eignarhlut í fyrirtækinu OneCoin en hefur þrátt fyrir það ekki farið varhluta af velgengni vinkonu sinnar. Þær kynntust fyrst árið 2008 í Búlgaríu þar sem Ásdís Rán bjó ásamt þáverandi eiginmanni sínum, Garðari Gunnlaugssyni, sem lék knattspyrnu í úrvalsdeildinni þar ytra. Þær urðu bestu vinkonur og nánast óaðskiljanlegar frá fyrsta degi og allt þar til Ruja hvarf fyrir tveimur árum. „Við töluðum saman hvern einasta dag og höfum verið bestu vinkonur í ellefu ár.“ Ruja hafði trú á Ásdísi Rán og greindi meðal annars frá því í gömlu viðtali við fréttamiðil í Búlgaríu að þær ættu töluvert sameiginlegt og hefðu ákveðið að fara í stofnun og rekstur fyrirtækis saman. Um var að ræða The Ice Cave, verslun Ásdísar Ránar, sem var opnuð árið 2011 í flottustu verslunarmiðstöð höfuðborgarinnar, Sofiu. Þar var Ruja helmingseigandi á móti Ásdísi Rán. Versluninni var lokað þegar Ásdís Rán flutti aftur til Íslands.

Þegar Ruja kom OneCoin á fót í heimalandi sínu þá hafði hún samband við Ásdísi Rán og fékk hana til þess að starfa við fyrirtækið. Ásdís Rán var meðal annars gerð að andliti rafmyntarinnar og fékk það verkefni að skipuleggja lúxusveislur þar sem starfsemin og möguleikar fjárfesta til að græða gífurlegar fjárhæðir voru kynntir. Ásdís Rán segist þó hafa komið að fleiri verkefnum í rekstri fyrirtækisins og hún líti á sig sem eina af fjölskyldu Ruja: „Ég aðstoðaði hana í flestöllu og ég hef farið reglulega að hitta dóttur hennar, eftir að hún hvarf, sem er þriggja ára gömul og býr með föður sínum í Þýskalandi. Ég hef mjög miklar áhyggjur og trúi því ekki að þetta endi illa. Ég vil trúa því að hún birtist aftur og hringi í mig.“

Ásdís Rán var gestur í glæsilegu samkvæmi sem Ruja Ignatova hélt í Sozopol. Í baksýn má sjá glæsihýsi vinkonunnar.

Vonar það besta

Ásdís Rán segir að Ruja hafi verið á leiðinni til Íslands í fyrsta skipti rétt áður en hún hvarf í október árið 2017. „Ég ræddi við hana tveimur dögum áður en hún hvarf og það veit ég, því hún skráði sig út alls staðar á öllum samfélagsmiðlum, hætti að svara tölvupósti og það var slökkt á símanum. Þá vissi ég að það væri eitthvað að. Hún er þannig týpa að hún er alltaf „online“. Síðan þá hefur enginn heyrt í henni og það er sama hvern þú spyrð, manninn hennar, mömmu hennar eða pabba, það hefur enginn heyrt í henni.“ En bestu vinkonur gefast sjaldnast upp á hvor annarri og þar er Ásdís Rán engin undantekning. Hún óttast það versta en vonar það besta.

„Þetta eru engir afbrotamenn. Nú er ég í þessari fjölskyldu með henni, bróður hennar og öllum. Þetta er bara venjulegt fólk sem var með brjálæðislega góða hugmynd sem gekk svona frábærlega vel og fór út um allan heim á einu, tveimur árum. Svo kemur í ljós á einhverjum tímapunkti, sem getur verið eftir tvö, þrjú ár eða eitthvað, að þetta var kannski bara allt í lagi, allt saman. Mér finnst ólíklegt að hún sé dáin eða einhver hafi látið hana hverfa. Mér finnst líklegra að hún hafi gert það sama og margir frumkvöðlar; látið sig hverfa á meðan verið er að vinna úr málunum. Það er komið svo mikið af málum í gang varðandi þetta og þeir hefðu viljað halda henni í fangelsi þar til það væri búið að vinna úr þeim og það gæti tekið mörg ár. En hún er rosalega klár þessi stelpa og ég vil ekki trúa því að hún sé dáin,“ segir Ásdís Rán sem býst við því að hún verði sú fyrsta sem týnda búlgarska athafnakonan hringi í þegar hún ákveður að stíga fram. Málið sé þó flókið og verði flóknara með degi hverjum, en yngri bróðir Ruja, Konstantin Ignatova, er nú í haldi alríkislögreglunnar í Bandaríkjunum.

Ásdís Rán á milljón dollara glæsisnekkju Ruja Ignatova en snekkjan ber nafnið Divine. Ljósmynd/Facebook

Bíður eftir símtali

Þótt ótrúlegt megi virðast þá er OneCoin Ltd.  enn starfandi en fyrirtækið hefur tekið fyrir að starfsemin sé ólögleg. Í mars síðastliðnum var Konstantin Ignatova, yngri bróðir Ruja Ignatova, handtekinn á LAX-flugvellinum í Los Angeles. Hann var ákærður fyrir peningaþvætti og fjársvik en hann hefur viðurkennt sinn hluta í málinu. Konstantin Ignatova hefur greint frá því við skýrslutökur að systir hans hafi verið búsett í Sofiu þegar hún hvarf. Sagði hún bróður sínum að hún væri orðin „mjög þreytt“ og að hún óttaðist að einhver nákominn myndi vísa FBI á hana.
Í seinasta mánuði skrifaði hann undir samning við saksóknara um að veita nauðsynlegar upplýsingar sem gætu leitt til handtöku systur sinnar og samverkamanna hennar, sem eru meðlimir búlgörsku mafíunnar. Talið er líklegt að honum verði veitt vitnavernd þar sem samstarf hans við yfirvöld setur hann í mikla hættu.

„Bróðir hennar, sem er í fangelsi núna, var aðstoðarmaður hennar og fór sjálfkrafa í stjórnunarstöðu þegar Ruja hvarf, en ætti kannski ekki að vera beint í þeirri stöðu,“ segir Ásdís Rán sem bíður við símann eftir símtali frá bestu vinkonu sinni.

Vinkonur á góðri stundu. Ljósmynd/Facebook
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Í gær

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum
Fréttir
Í gær

Snorri furðar sig á Byggðastofnun – Sagður gera lítið úr þeim sem ekki tala íslensku

Snorri furðar sig á Byggðastofnun – Sagður gera lítið úr þeim sem ekki tala íslensku
Fréttir
Í gær

Uppnám á Íslandsmótinu í skák – Stórmeistari hættir þátttöku út af hávaða í kylfingum

Uppnám á Íslandsmótinu í skák – Stórmeistari hættir þátttöku út af hávaða í kylfingum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lögreglan sleppir tveimur í morðmálinu á Suðurlandi

Lögreglan sleppir tveimur í morðmálinu á Suðurlandi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dönsk stjórnvöld búa sig undir stríð – Hyggjast þvinga fólk til að gegna herþjónustu

Dönsk stjórnvöld búa sig undir stríð – Hyggjast þvinga fólk til að gegna herþjónustu