Vagnstjóri á leið 51 sem lagði af stað frá Mjóddinni í Reykjavík kl. 14:59 til Hveragerðis, og ók síðan þaðan til Selfoss, hikaði ekki við að nota snjallsíma sinn í akstri. Að sögn farþega, sem sendi DV myndir af athæfinu, talaði vagnstjórinn í símann og notaði hann óspart til annars brúks, hvort sem hann var að spila leiki eða senda SMS.
DV hafði samband við Guðmund Heiðar Helgason, upplýsingafulltrúa Strætó. Tjáði hann DV að vagnstjórinn væri starfsmaður verktaka hjá Strætó en málið heyrði samt vissulega undir Strætó.
„Við fordæmum svona hegðun. Þetta er brot á starfsreglum og setur farþega vagnsins í óþarfa hættu. Við lítum málið mjög alvarlegum augum,“ segir Guðmundur.
Varðandi viðurlög við svona hegðun eru þau eftir atvikum áminning eða brottrekstur. Vildi Guðmundur ekki fullyrða hver viðurlögin yrði varðandi þetta atvik, það væri í höndum verktakans sem annast þessa leið fyrir strætó. „Við höfum komið öllum upplýsingum á næsta yfirmann og það verður tekið á málinu eins fljótt og hægt er,“ segir Guðmundur enn fremur.