fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fréttir

Frægustu íslensku eyðslufylleríin – Óvissuferð í lúxusþotu – Íburðarmikil fermingarveisla: „Mér finnst þetta bara alveg gaga“

Auður Ösp
Sunnudaginn 2. júní 2019 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eftirminnilegt partí á vegum Landsbankans var haldið í Mílanó í september 2007. Tvær einkaþotur flugu með 300 boðsgesti til ítölsku borgarinnar þar sem gist var á einu allra flottasta hótelinu, Principe di Davoia. Auk þeirra var 20 öðrum boðið sem komu sjálfir til Ítalíu á einkaþotum. Allir helstu stjórnendur Landsbankans voru að sjálfsögðu í partíinu sem haldið var í 15. aldar hallargarði. Það sem vakti hvað mesta athygli voru þó veitingarnar sem boðið var upp á, en þar á meðal var risotto með gullflögum.

Að gefnu tilefni rifjar DV hér upp nokkur eftirminnileg „bruðl“ sem ratað hafa í fjölmiðla undanfarin ár og þá ekki síst á árunum fyrir hrun.

Tom Jones skemmti gestum

Nýárspartí Ármanns Þorvaldssonar, þáverandi forstjóra Kaupþings í Bretlandi, urðu fræg á góðæristímabilinu. Toppnum var þó líklega náð um áramótin 2005 til 2006.

Í veislunum árin á undan hafði Ármann stigið á svið og sungið lög Tom Jones. „Why get the cheap Icelandic version if you can get the real act?“ sagði Ármann við veislugesti í partíinu þann 1. janúar 2006. Því næst steig Tom Jones sjálfur á svið ásamt tuttugu manna hljómsveit og skemmti gestum í rúmlega klukkutíma. Ári síðar hélt Ármann ennþá veglegra partí og að þessu sinni sá rokksveitin Duran Duran um að skemmta gestum.

Á þessum árum rötuðu fleiri glæsiveislur íslenskra auðkýfinga í fréttir hér heima og erlendis. Fertugsafmæli Björgólfs Thors Björgólfssonar var á meðal þeirra sem stóðu upp úr. Þannig var því lýst í frétt DV í október 2008:

„Hann sérpantaði farþegaflugvél fyrir gesti sína en vélin var öll innréttuð eins og lúxus-farrými í einkaþotu. Gestirnir voru 130 talsins en þeir vissu ekkert hvert ferðinni væri heitið þegar þeir mættu út á Keflavíkurflugvöll. Það eina sem fylgdi boðinu var að fólki var bent á að hafa léttan klæðnað og strandfatnað meðferðis. Flugstjórinn tók stefnuna á Jamaíka þar sem afmælið var haldið í gríðarstórum kastala sem ber nafnið Trident. Skemmtikraftarnir í afmælinu voru ekkert slor. Aðalnúmerið var bandaríski rapparinn 50 Cent sem, eins og Björgólfur Thor, byrjaði á botninum en vann sig síðan upp og er nú einn af tekjuhæstu tónlistarmönnum í heimi.“

Björgólfur Thor

Fimmtugsafmæli athafnamannsins Ólafs Ólafssonar í ársbyrjun 2007 var heldur ekki af verri endanum. Afmælið var haldið í Ísheimum, kæligeymslu á vinnusvæði Samskipa í Kjalarvogi í Reykjavík og var hún sérútbúin fyrir afmælið.

Það var engu til sparað í fimmtugsafmæli auðmannsins.

Frystivörumiðstöðin var inréttuð sem veiðikofi með tilheyrandi kostnaði, enda Ólafur annálaður veiðiáhugamaður. Ólafur flutti meðal annars inn kokka frá hinu fræga veitingahúsi Nobu í London til að elda ofan í gestina, auk þess sem matreiðslumenn frá Argentínu og Þremur Frökkum komu að veislunni. Meðal annars var boðið upp á gíraffa og sebrahestakjöt. Síðast en ekki síst var sjálfur Elton John fenginn til að skemmta gestunum en Ólafur er sagður hafa greitt söngvaranum milljón dollara, um 70 milljónir króna á þeim tíma, fyrir að spila í afmælinu.

200 gestir til Mónakó

Þá er komið að Baugsdeginum fræga og veisluhöldunum. Í maí 2007 var yfir 200 starfsmönnum og viðskiptafélögum Baugs flogið út til Mónakó á einkaþotum. Gist var á lúxushótelinu Monte Carlo Bay Hotel í tvær nætur.

Í hverju herbergi var gjafapoki fyrir gesti sem innihélt Perrier-Jouët-kampavín, kerti og baðolíur frá Jo Malone og sérpöntuð handklæði þar sem farið var yfir dagskrána. Skemmtikraftarnir voru ekki af verri endanum: goðsögnin Tina Turner og breski grínistinn Jonathan Ross. Þess má geta að á þessum tíma var Ross hæstlaunaði sjónvarpsmaður Bretlands, með sex milljónir punda í árslaun.

Borgaði 13 milljónir en fór aldrei

Í maí 2005 greindi DV frá því að Jón Ásgeir Jóhannesson hefði borgað 13 milljóna króna þátttökugjald til að fá að keppa með Hollywood-stjörnum, milljarðamæringum og kóngafólki í hinum fræga glæsibílakappakstri Gumball 3000 í Mónakó.

Það varð þó ekkert úr þátttöku Jóns Ásgeirs þar sem hann ákvað að fara frekar til Kína með forseta Íslands og föruneyti hans. Hann sendi því frændur sína, Vilhjálm og Jón Þór Einarssyni, í staðinn og lánaði þeim Aston Martin-bifreið sína.

Ari Eldjárn og Logi Bergmann í fermingarveislu

Í apríl 2011 sagði DV frá íburðarmikilli fermingarveislu sonar auðmannsins Þórðar Más Jóhannessonar, fyrrverandi forstjóra Straums-Burðaráss og Gnúps. Samkvæmt heimildum DV bauð fjölskyldan til heljarinnar veislu á Hilton hótel Nordica af því tilefni.

Heimildir hermdu að um 150 manns hafi verið í veislunni sem var mjög íburðarmikil og ekkert var til sparað í mat eða drykk. „Mér finnst þetta bara alveg gaga,“ sagði heimildarmaður í samtali við DV en sjónvarpsmaðurinn Logi Bergmann Eiðsson var veislustjóri og Ari Eldjárn uppistandari sá um að skemmta veislugestum.

Í júní 2007 sagði tímaritið Sirkus frá því að athafnamaðurinn Sigurður Bollason hefði tekið sig til og leigt ballettsal og þrjá kennara einu sinni í viku fyrir þriggja ára gamla dóttur sína. Ástæðan var sú að dóttir hans vildi byrja að æfa ballett árið áður en fékk synjun þar sem aldurstakmarkið er þriggja ára.

Bruðl

Það vakti sömuleiðis mikla athygli í september 2007 þegar Séð og heyrt birti frétt um að Jón Ásgeir Jóhannesson hefði gefið 17 ára gamalli dóttur sinni Range Rover­bifreið og íbúð að gjöf. Jón Ásgeir var einn af eigendum Birtings á þessum tíma. Stuttu seinna lét Mikael Torfason, aðalritstjóri Fróða og ritstjóri Séð og heyrt af störfum.

Glæsiveislunum hefur fækkað síðustu ár en eitt nýlegasta dæmið er fimmtugsafmæli Skúla Mogensen, fyrrverandi forstjóra WOW Air, í ágúst á síðasta ári. Veislan var haldin í Hvammsvík í Kjósinni og var öllu tjaldað til.

Skúli Mogensen.

Jakob Frímann Magnússon sá um veislustjórn og skemmtiatriðin voru ekki af verri endanum. Stuðmenn léku fyrir dansi og þá stigu einnig á svið söngvararnir Daníel Ágúst og Högni Egils ásamt Dj Margeiri. Öllu var svo slúttað með glæsilegri flugeldasýningu. Fréttir af veisluhöldunum rötuðu í fjölmiðla. Einhverjir hristu hausinn og spurðu sig hvort sagan væri að endurtaka sig: Var þetta seinasta partíið áður en allt færi á hausinn? Sjö mánuðum síðar var tilkynnt um gjaldþrot flugfélagsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“
Fréttir
Í gær

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hefur þú stofnað bankareikning í Danmörku? Þá þarftu kannski að bregðast hratt við svo peningarnir þínir renni ekki í danska ríkiskassann

Hefur þú stofnað bankareikning í Danmörku? Þá þarftu kannski að bregðast hratt við svo peningarnir þínir renni ekki í danska ríkiskassann
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Facebook hafnaði kosningaauglýsingu Guðmundar Felix á undarlegum forsendum

Facebook hafnaði kosningaauglýsingu Guðmundar Felix á undarlegum forsendum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljótar sögur ganga um starfsmenn Langanesbyggðar – Björn sveitarstjóri talar um „eitrað andrúmsloft“ á staðnum

Ljótar sögur ganga um starfsmenn Langanesbyggðar – Björn sveitarstjóri talar um „eitrað andrúmsloft“ á staðnum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mörg dæmi um að frændhygli, kunningsskapur og pólitísk fyrirgreiðsla ráði för – „Og svo spurði ég um spillingu“

Mörg dæmi um að frændhygli, kunningsskapur og pólitísk fyrirgreiðsla ráði för – „Og svo spurði ég um spillingu“