fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

Caryna er frá Venesúela: Ríkisstjórnin hatar fólkið í landinu

Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 16. mars 2019 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Af tvennu illu myndi fólk frekar velja erlend afskipti en að þessi ríkisstjórn sé áfram við völd. Það kann að hljóma brjálæðislega, en flestir myndu fagna því ef Bandaríkjaher myndi ráðast inn í landið á morgun. Fólk hugsar með sér að þeir gætu aldrei verið verri en núverandi valdhafar,“ segir Caryna Gladys Bolivar Serge sem er frá Venesúela. Caryna hefur búið á Íslandi frá árinu 2002 en hluti af fjölskyldu hennar býr enn í föðurlandinu. Að sögn Carynu er ástandið skelfilegt í Venesúela og fer dagversnandi.

Venesúela er staðsett í norðurhluta Suður-Ameríku og liggja landamærin meðal annars að Brasilíu og Kólumbíu. Landið var áður nýlenda Spánverja en öðlaðist sjálfstæði á 19. öld. Venesúela býr yfir stærstu þekktu olíulindum heims. Landið hefur verið mikið í fréttum undanfarin misseri vegna frásagna af hungursneyð, mannréttindabrotum og landflótta. Árið 1998 komst sósíalistinn Hugo Chavez til valda eftir friðsamlegar og óumdeildar kosningar en hann naut mikilla vinsælda almennings. Vinsældirnar dvínuðu er leið á valdatímann vegna ákafrar þjóðnýtingarstefnu stjórnvalda, óðaverðbólgu og vaxandi fátæktar. Chavez lést árið 2013 en við embætti forseta tók þáverandi ráðherra í ríkisstjórn hans, Nicolas Maduro. Ástandið í landinu er talið hafa versnað enn frekar undir stjórn hans og er Maduro talinn mjög valtur í sessi. Stjórnarandstæðingurinn Juan Guaido hefur lýst sig opinberlega forseta landsins en hann nýtur stuðnings Bandaríkjamanna og fleiri andstæðinga stjórnvalda í Venesúela.

Hafði alltaf illan bifur á Chavez

Caryna Gladys Bolivar Serge fluttist til Íslands árið 2002 en þá var ástandið ekkert í líkingu við það sem það er núna. Caryna kennir jóga og súmba, starfar sem einkaþjálfari hjá Reebok Fitness og kennir leikfimi hjá Félagsmiðstöð eldri borgara. Hún er gift íslenskum manni og á með honum dóttur. Hluti af fjölskyldu Carynu býr í föðurlandinu við þröngan kost.

„Þegar Hugo Chavez komst til valda var hann mjög vinsæll. En mér leist alltaf illa á hann. Mér fannst hann kynda undir hatri og sundrung, var með popúlískan málflutning. Hann skipti öllum í „við“ sem voru öreigarnir og „þeir“ sem voru hinir ríku,“ segir Caryna en hún telur að ástandið hafi versnað mikið síðan Chavez féll frá. Stefnan var þó frá honum komin og fór harðnandi:

„Þeir fóru að þjóðnýta allt og eyðilögðu einkageirann með undirboðum á vöru, til dæmis opnaði ríkið matvöruverslanir þar sem verðlag var langt undir því sem tíðkaðist í einkaverslunum. Enginn gat keppt við þessi verð og ef einhverjir héldu velli þá voru þeir bara teknir úr umferð. Þeir náðu líka tökum á öllum fjölmiðlum. Þeir lokuðu ekki fjölmiðlum en þeir fjölmiðlar sem töluðu gegn stjórnvöldum misstu einfaldlega útsendingarleyfi.“

Sýndarkosningar – námsmenn pyntaðir og myrtir

Caryna segir að reglulega séu haldnar kosningar í Venesúela en ekkert sé að marka þær. „Því er haldið fram að kosningarnar séu leynilegar en þú þarft að gefa upp kennitöluna þína og svo þegar það gerist að til dæmis opinberir starfsmenn greiði atkvæði gegn stjórnvöldum þá eru þeir reknir fyrirvaralaust.“

Caryna segir að stjórnvöld beiti ýmsum fantabrögðum gegn friðsamlegum mótmælum sem færast mjög í vöxt í landinu. „Námsmenn hafa verið í fararbroddi í mótmælum en þeir hafa margir verið fangelsaðir, pyntaðir og myrtir. Herinn sprautar oft táragasi á mótmælendur og svo hafa stjórnvöld tíðkað að hleypa föngum úr fangelsi, vopna þá og segja þeim að skjóta á mótmælendur. Þá lítur þetta út í fréttum eins og almennir borgarar séu að berjast sín á milli þegar í raun það eru vopnaðir útsendarar stjórnvalda sem eru að myrða vopnlausa mótmælendur.“

Getur ekki farið til landsins aftur

„Ég varð að fljúga til Venesúela árið 2016 því faðir minn var mjög veikur. Lyfjasendingar frá ættingjum í útlöndum héldu í honum lífinu en hann fékk mjög takmarkaða læknisþjónustu. Þau lög eru í gildi að allir sem ferðast til Venesúela eða úr landinu verði að vera með venesúelskt vegabréf. Ég átti slíkt vegabréf sem var í gildi, en þegar ég ætlaði að fara aftur burtu sagði öryggisvörður mér að ég gæti ekki farið vegna þess að það væri úrelt form á passanum. Ég ræddi við annan öryggisvörð og grátbað hann um að hleypa mér burtu því ég ætti ekki heima þarna og ætti fjölskyldu á Íslandi. Ég fékk á endanum að fara en vegabréfinu var haldið eftir og ég get því ekki farið þangað aftur því enginn getur ferðast til landsins án venesúelsks vegabréfs.“

Caryna segir að faðir hennar hafi nær eingöngu fengið þau lyf sem ættingjar erlendis útveguðu honum en hann lést í fyrra. Caryna gat ekki verið við jarðarförina hans þar sem hún hefur ekki vegabréf lengur til að ferðast til landsins. Hún segir að margar hryllingssögur séu til af fólki sem dáið hafi í Venesúela vegna þess að það fékk ekki læknisþjónustu.

Í landinu býr móðir hennar og systir, en önnur systir hennar flúði ástandið til Spánar; einnig margt frændfólk. Hún segir að þetta fólk tóri vegna peningagjafa frá henni og öðrum ættingjum erlendis. Aðrir séu mun verr staddir og svelti heilu hungri enda sé tvöfalt hagkerfi í landinu, annars vegar dollarakerfi og hins vegar gjaldmiðill landsins. Þeir sem eigi ekki erlendan gjaldmiðil séu illa staddir enda verðbólga um 1000 prósent.

Glæpamenn og eiturlyfjasalar við stjórn

„Þessir menn fela sig mikið á bak við merkimiðann sósíalismi til að koma sér í mjúkinn hjá sósíalískum ríkjum en í raun eru þetta fyrst og fremst glæpamenn. Margir þeirra eru viðriðnir eiturlyfjasmygl suður á bóginn. Þeir koma fram við varnarlausan almenning af illmennsku og í rauninni hata þeir þjóðina því allur almenningur er á móti þeim,“ segir Caryna.

Hún segir að viðskiptaþvinganir og önnur afskipti erlendra ríkja hafi ekkert að gera með ástandið enda séu viðskiptaþvinganirnar nýtilkomnar og feli meðal annars í sér frystingu á eignum valdhafa. Vandinn sé að öllu leyti heimatilbúinn.

Aðspurð um stjórnmálaskoðanir sínar segir Caryna: „Ég þoli ekki orðið sósíalisma vegna ástandsins þarna. En Íslendingar þurfa samt að gera sér grein fyrir því að það sem er í gangi í Venesúela er eitthvað sem er órafjarri hugmyndum Íslendinga um sósíalisma.“

Caryna unir hag sínum á Íslandi mjög vel og segir að Íslendingar hafi tekið henni opnum örmum frá fyrstu stundu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Spáir ekki dropa úr lofti í Reykjavík fyrr en í maí – Sumarið lítur sérstaklega vel út

Spáir ekki dropa úr lofti í Reykjavík fyrr en í maí – Sumarið lítur sérstaklega vel út
Fréttir
Í gær

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Manndrápsmálið á Suðurlandi – Hinn látni sagður hafa hringt í kærustu sína skömmu fyrir andlátið og sagst hafa fallið úr stiga

Manndrápsmálið á Suðurlandi – Hinn látni sagður hafa hringt í kærustu sína skömmu fyrir andlátið og sagst hafa fallið úr stiga
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Snorri furðar sig á Byggðastofnun – Sagður gera lítið úr þeim sem ekki tala íslensku

Snorri furðar sig á Byggðastofnun – Sagður gera lítið úr þeim sem ekki tala íslensku
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íbúar brjálaðir út í Hafnarfjarðarbæ: „Þetta er til háborinnar skammar og engin lausn“

Íbúar brjálaðir út í Hafnarfjarðarbæ: „Þetta er til háborinnar skammar og engin lausn“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réðst á dreng sem ætlaði að gera dyraat

Réðst á dreng sem ætlaði að gera dyraat