fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Guðmundur segist aldrei hafa heyrt neinn spúa eins miklum ofbeldisfullum viðbjóði og sexmenningarnir gerðu á Klausturbarnum

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 3. desember 2018 08:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Engan hef ég heyrt spúa eins miklum ofbeldisfullum viðbjóði yfir annað fólk og þingmennirnir sex gerðu tímunum saman á Klausturbarnum. Ég hef, í stuttu máli, aldrei heyrt annað eins. Þetta samtal sem þarna fór fram er einstakt. Mér finnst mikilvægt að þetta sé haft í huga og viðurkennt.“

Þetta er meðal þess sem kemur fram í pistli eftir Guðmund Steingrímsson í Fréttablaðinu í dag þar sem Klaustursmálið svokallað er tilefni skrifa hans. Þar lýsir Guðmundur upplifun sinni af samtölu stjórnmálamanna í gegnum tíðina en hann ólst upp við slíkt en Steingrímur heitinn Hermannsson, fyrrum forsætisráðherra, er faðir hans.

„Ég held ég hafi verið átta ára þegar ég byrjaði að hlera stjórnmálamenn. Ég ólst upp á stjórnmálaheimili. Sífellt kom stjórnmálafólk í heimsókn. Heilu stjórnarmyndunarviðræðurnar áttu sér stað heima. Stundum kom fólk í veislur eða til að skrafa óformlega yfir einhverju glundri í glasi. Þá var talað hátt og hlegið hátt, langt fram á nótt. Hvellar hláturrokurnar í bland við tóbaksreyk gestanna eru hughrif sem líða mér seint úr minni.“

Segir Guðmundur sem segist hafa átt sér sinn stað í stiganum á milli hæðanna þar sem hann gat setið án þess að eftir væri tekið og hlustað á það sem fram fór.

„Þar heyrði ég bæði glaðhlakkalegar og oft glannalegar yfirlýsingarnar innan úr stofu þegar svo bar undir, en líka greindi ég orðaskil í varfærnislegri samtölum sem áttu sér stað inni á kontor. Stundum var fólk ekki sammála. Stundum var greinilegt að einhver var ósáttur við einhvern. Straumar og stefnur rákust á. Persónur glímdu. Hugsjónir voru ósamrýmanlegar. Það var ýmislegt látið flakka. Alls konar stór orð heyrði ég hrynja af vörum valdamanna, stundum þvoglumæltum. Alls konar grín heyrði ég. Alls konar yfirlýsingar þutu um húsakynnin. Alls konar óvarleg orð. Alls konar misgáfulegt geðshræringartal í hita augnabliksins fékk ég að heyra. Alls konar brigslyrði. Alls konar bull og vitleysu. Ég man hins vegar ekki eftir því að ég hafi nokkurn tímann, í öll þessi ár, heyrt einhvern tala um konu sem kuntu.“

Segir Guðmundur og lýsir síðan eigin reynslu af heimi stjórnmálanna sem starfsmanni framboða, ráðgjafa og síðar þingmanni.

„Í stjórnmálum kynnist maður alls konar fólki og lendir í hinum fjölbreytilegustu kringumstæðum. Yfirleitt var fólk að vinna vinnuna sína, eftir bestu getu og sannfæringu. Edrú. Stundum var þó dottið í það. Það kom fyrir að ég og aðrir fórum heldur óvarlega í eitrið. Gleðskapur stóð fram eftir nóttu. Yfirleitt var bara gaman. Ýmislegt gat þó gengið á, misgáfulegt. Alls konar yfirlýsingar fengu að fljúga. Það er eins og gengur og gerist held ég, í lífinu öllu og á flestum vinnustöðum. Fólk slettir úr klaufunum. Partíhald getur tekið á sig hinar heimskulegustu myndir. Fólk er ekki alltaf besta útgáfan af sjálfu sér, sérstaklega þegar áfengið er annars vegar. Ég hef átt mína bömmera. Ég man hins vegar ekki eftir því að ég hafi nokkurn tímann, í öll þessi ár, heyrt eða tekið þátt í tali samþingmanna minna, hvað þá nokkurra klukkustunda tali, um konur sem kuntur og tíkur.“

Segir Guðmundur og víkur síðan að því sem sagt var um Freyju Haraldsdóttur og þeim ofbeldisfulla viðbjóði sem hann segir tal sexmenningana hafa verið:

„Ekki heldur hef ég heyrt mögnuðum, fötluðum mannréttindabaráttukonum líkt við sel út af líkama sínum. Engan hef ég heyrt spúa eins miklum ofbeldisfullum viðbjóði yfir annað fólk og þingmennirnir sex gerðu tímunum saman á Klausturbarnum. Ég hef, í stuttu máli, aldrei heyrt annað eins. Þetta samtal sem þarna fór fram er einstakt. Mér finnst mikilvægt að þetta sé haft í huga og viðurkennt.“

Segir Guðmundur og víkur síðan að viðbrögðum sumra þátttakendanna í samtalinu eftir að fréttir voru fluttar af því.

„Í viðbrögðum sínum við þessari afhjúpun á eðli sínu hafa sumir þátttakendur samtalsins reynt að bregða fyrir sig Jesú Kristi. Sá yðar sem syndlaus er kasti fyrsta steininum, er sagt. Fullyrt er að viðbrögð fólks, einkum karla, séu hræsnisfull. Þeir hafi flestir ef ekki allir talað svona sjálfir. Við karlar, segja þessir menn, eigum að líta í eigin barm. Donald Trump reyndi þetta líka þegar tal hans um að grípa í píkur kvenna var afhjúpað. Hva, sagði Trump, svona tölum við í búningsklefanum. Nei, hugsaði þá meginþorri karla. Það er ekki satt.“

Segir Guðmundur og segist ekki ætla að setja sjálfan sig á háan hest, aðrir verði að dæma hann.

„Ég treysti mér hins vegar mjög vel til þess að setja nánast alla karlmenn sem ég þekki á háan hest hvað varðar tal á börum, í búningsklefum eða víðar. Ég á engan vin sem talar svona viðurstyggilega um konur og annað fólk. Mín tilfinning er sú að 95% karlmanna geri það ekki.“

Segir Guðmundur og lýkur síðan pistli sínum á eftirfarandi orðum:

„Öllum getur orðið á. En hvenær hættir hún að virka þessi yfirlýsing í kjölfar þess að maður gerir upp á bak, að aðrir eigi að líta í eigin barm? Auðvitað flýgur sá skítur ekki núna, að aðrir séu hræsnarar. Þið verðið bara að segja af ykkur.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom
Fréttir
Í gær

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala