fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fréttir

Hjálmar sagði að kennitöluflakk kæmi ekki til greina í akstursþjónustu fatlaðra

Kristinn H. Guðnason
Laugardaginn 10. nóvember 2018 10:40

Hjálmar Sveinsson Heyrði góð meðmæli með akstursþjónustu Prime Tours.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í vikunni gerði stjórn Strætó bs. samkomulag við fyrirtækið Far-vel ehf. varðandi akstursþjónustu fatlaðra. Var það framsal á samningi sem Prime Tours átti en það félag var nýlega tekið til gjaldþrotaskipta. Stjórnarformaður Far-vel er Hjörleifur Harðarson sem var forráðamaður Prime Tours fyrir gjaldþrotaskiptin. Hjálmar Sveinsson, borgarfulltrúi og stjórnarmaður í Strætó, fullyrti fyrir samkomulagið að kennitöluflakk mætti ekki eiga sér stað.

 

Sagði ákvæði um keðjuábyrgð mikilvæg

DV hefur áður fjallað um samning Strætó við Prime Tours. Félagið fékk samning framseldan eftir útboð árið 2014 en hét þá Ný tækni og var ekki með leyfi til hópflutninga. Aðrir verktakar vísuðu málinu til kærunefndar útboðsmála og var tvívegis úrskurðað að Strætó hefði skapað sér skaðabótaskyldu og var gert að greiða samtals 1,6 milljónir króna í málskostnað. Hitt málið var vegna þess að Strætó hafði úthlutað Prime Tours of miklum verkefnum miðað við rammasamning.

Erfið fjárhagsstaða Prime Tours var vel þekkt í langan tíma og eftir árangurslaust fjárnám og nauðasamninga var félagið tekið til gjaldþrotaskipta í október. Engu að síður hélt Strætó áfram að starfa með þeim. Jafnvel eftir að upp komst að fötluðum var ekið á ótryggðum bílum.

Hjálmar Sveinsson er nýlega kominn inn í stjórn Strætó. Eftir að verktakar sendu honum fyrirspurnir um stöðuna skrifaði hann bréf þar sem stóð að hann teldi ekki koma til greina að fyrirtæki í þessari þjónustu gæti skipt um kennitölu og haldið áfram eins og ekkert væri. Hann þekkti þó ekki lögfræðina í slíkum málum. Jafnframt fullyrti hann að ákvæði um keðjuábyrgð væru mikilvæg og þeim yrði fylgt eftir.

 

Treystir framkvæmdastjóranum

Í samtali við DV segir Hjálmar að eftir að hafa fengið álit frá lögfræðingum hafi framsal samningsins verið samþykkt.

„Samkvæmt þessu áliti var ekki hægt að hafna framsalinu á forsendum viðskiptasögu.“

Þú sagðir áður að kennitöluflakk kæmi ekki til greina. Hvað var það sem sannfærði þig um að þetta væri rétt ákvörðun?

„Ég tók það fram að ég þekkti ekki allar lögfræðilegar hliðar. Eftir að hafa farið yfir þetta álit þá stóð ég með þessari ákvörðun.“

Er þessum aðilum treystandi til þess að sjá um þjónustuna, í ljósi þess að þeir hafa til dæmis keyrt fatlaða á ótryggðum bílum?

„Skiptastjóri kom með þessa tillögu. Ef við tölum um Prime Tours þá skilst mér að þeir hafi fengið mjög góða einkunn hjá tveimur einstaklingum sem ég þekki sem eru að nota þjónustuna. Það er það eina sem ég hef heyrt.“

Nú var slæm staða Prime Tours þekkt í langan tíma og Strætó tvisvar úrskurðað skaðabótaskylt vegna þess. Hefði ekki átt að bregðast strax við?

„Ég er nýkominn þarna inn og þekki ekki forsöguna nema að mjög litlu leyti.“

Verður allt þetta mál kannað í stjórninni?

„Alveg örugglega, en ég held að sagan liggi nokkuð ljós fyrir.“

Nýtur Jóhannes Svavar Rúnarsson framkvæmdastjóri enn þá trausts?

„Hann nýtur alla vega míns trausts. Ég get ekki talað fyrir hönd annarra.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Fréttir
Í gær

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar
Fréttir
Í gær

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu