Eins og greint hefur verið frá lést írska söngkonan Dolores O‘Riordan skyndilega í London í gær þar sem hún var við upptökur. Dolores var söngkona The Cranberries en hljómsveitin naut mikilla vinsælda á tíunda áratug liðinnar aldar.
Þekktasta lag sveitarinnar er án vafa lagið Zombie sem kom út árið 1994. Það sem færri vita er að lagið var samið um hryðjuverkaárás Írska lýðveldishersins (IRA) í Cheshire árið 1993. Tvö börn létust í árásinni, þar á meðal tólf ára gamall sonur Colin Parry sem ræddi málið við BBC eftir dauða Dolores.
Þó að tæp 24 ár séu liðin frá útgáfu lagsins segist Colin ekki hafa frétt það fyrr en í gær að lagið væri að mörgu leyti tileinkað syni hans, Tim Parry. Hinn pilturinn sem lést var þriggja ára og hét Johnathan Ball. Báðir voru þeir staddir í miðbæ Warrington í Cheshire þegar sprengja sprakk með þeim afleiðingum að þeir létust og 54 til viðbótar slösuðust.
„Það var ekki fyrr en í gær að ég áttaði mig á því að hljómsveitin, eða hún sjálf, hefðu samið þetta lag í minningu þeirra atburða sem þarna áttu sér stað. Textinn er stórbrotinn,“ segir Colin og bætir við að atburðirnir í Írlandi hafi haft víðtæk áhrif á íbúa á Bretlandseyja.“
Sjálf sagði Dolores að lagið – og einkum textinn – ætti að vera áminning um það hversu ómennsk mannskepnan getur verið. Lagið Zombies náði efsta sætinu á vinsældalistum fjölmargra landa; til dæmis Þýskalandi, Ástralíu og Frakklandi.