fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

„Hvalakóngurinn sem skýtur og drepur íslenskar langreyðar í útrýmingarhættu“ – Segir dýraverndunarsinna vera hryðjuverkamenn

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 25. september 2018 05:37

Kristján Loftsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í fréttaskýringaþætti Danska ríkissjónvarpsins (DR), Horizont, sem sýndur var í gærkvöldi var fjallað um hvalveiðar Íslendinga. Þáttagerðarmenn DR höfðu farið til Íslands og rætt við ýmsa sem tengjast hvalveiðum beint og óbeint. Meðal annars var rætt við meðlimi í Sea Shepard UK sem hafa fylgst náið með hvalstöðinni í Hvalfirði í sumar og myndað komur hvalskipanna í bak og fyrir og verið með beinar útsendingar frá hvalstöðinni. Einnig var rætt við Kristján Loftsson, eiganda Hvals hf, um hvalveiðarnar og dýraverndunarsinna.

Fyrirsögnin í umfjöllun á vef DR um þáttinn var „Hvalakóngurinn sem skýtur og drepur íslenskar langreyðar í útrýmingarhættu.“ Í þeirri umfjöllun sem og í þættinum kemur fram að Kristján sé einn af síðustu hvalveiðimönnum heimsins sem drepi friðaðar langreyðar og selji kjötið af þeim þrátt fyrir alþjóðlegt bann og almenna fordæmingu.

Haft er eftir Kristjáni að hvalveiðarnar snúist um að nýta auðlindirnar, ef hvalastofninn sé í góðu standi þá sé ekkert að því að nýta hann. Hvalavertíðinni lauk í gær þegar síðustu hvalirnir komu að landi í Hvalfirði en alls voru 146 langreyðar veiddar á tímabilinu, þar af voru tvær blendingar af langreyði og steypireyði.

Skjáskot af vef DR.

Kristján vandaði dýraverndunarsinnum ekki kveðjurnar í þættinum og sagði samtök þeirra vera forherta hópa sem myndu drepa fólk ef til þess kæmi. Þetta væru hryðjuverkamenn og ef þeir taki lögin í eigin hendur þá verði vandræði.

Einnig var rætt við Karen Kermode og Josh Riley, meðlimi í Sea Shepard UK en þau voru í Hvalfirði til að fylgjast með starfseminni í Hvalstöðinni.

„Þetta verður að stoppa núna. Það er ómanneskjulegt að drepa þessa hvali.“

Sagði Kermode. Hún og félagar hennar í Sea Shepard berjast nú gegn því að Hvalur hf. fái leyfi til hvalveiða á nýjan leik en vertíðin, sem lauk í gær, var sú síðasta á núverandi leyfi.

„Fólk eins og hann kemst upp með allt. Honum er skítsama.“

Nærvera Sea Shepard félaganna truflar Kristján hins vegar ekki.

„Mér gæti ekki staðið meira á sama um hvort þau eru hérna eða ekki.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Sanna birtir ferðasögu: Var lengur í strætisvagninum en í fermingarveislunni – „Það var gott að fá þessa strætóreynslu“

Sanna birtir ferðasögu: Var lengur í strætisvagninum en í fermingarveislunni – „Það var gott að fá þessa strætóreynslu“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Siggi stormur óvenju bjartsýnn varðandi sumarið – „Ég er eiginlega í sjöunda himni yfir þessu”

Siggi stormur óvenju bjartsýnn varðandi sumarið – „Ég er eiginlega í sjöunda himni yfir þessu”
Fréttir
Í gær

Forsetaframbjóðandi greiddi fyrir viðtalið í NBC – Segir verðið trúnaðarmál – „I´m Gonna Win, There You Go“

Forsetaframbjóðandi greiddi fyrir viðtalið í NBC – Segir verðið trúnaðarmál – „I´m Gonna Win, There You Go“
Fréttir
Í gær

Halla tjáir sig um ferilskrána: „Ég hef enga ástæðu til að ýkja eitt eða neitt í mínum bakgrunni“

Halla tjáir sig um ferilskrána: „Ég hef enga ástæðu til að ýkja eitt eða neitt í mínum bakgrunni“