Svefn og þreyta er fjórða algengast orsök banaslysa í umferðinni hér á landi. Rannsóknir sýna að það er þrisvar sinnum líklegra að slys vegna þreytu valdi dauðsfalli eða örkumlun heldur en hraðakstur þar sem sofandi ökumaður bregst ekki við aðstæðum.
Sigrún A. Þorsteinsdóttir, sérfræðingur í forvörnum hjá VÍS, segir í samtali við DV að erlendar rannsóknir sýni að þreyta sé valdur að 20% allra umferðarslysa. „Þetta eru slys sem verða vegna þess að ökumaður bregst ekki við þannig að alvarleiki slysanna er mjög mikill.“ Fjöldi slysa sem tilkynnt eru til VÍS ár hvert þar sem ökumaður sofnar undir stýri skipta tugum. Slysin eru yfirleitt mjög alvarleg þar sem þau enda oftar en ekki með útafakstri eða framanákeyrslu. „Ef þú ert á 90 kílómetra hraða þá ertu ekki nema 3-4 sekúndur að fara 100 metra, það er margt sem getur gerst á þeim tíma ef augunum er lokað. Það er talað um að syfjaður ökumaður geti verið jafn hættulegur og ölvaður ökumaður.“
Eru slys af þessu tagi algengari í dreifbýli?
„Banaslys þar sem svefn hefur áhrif eru algengari í dreifbýli. Maður getur mjög vel ímyndað sér að þessi mjög einhæfi akstur í dreifbýli geri það að verkum að það eru meiri líkur að maður sofni heldur en í þéttbýli.“
Það er lykilatriði að ökumenn séu úthvíldir. Farþegar þurfa að vera meðvitaðir um að halda ökumanni félagsskap eða skipta við hann. Ef enginn er til að skipta við ökumanninn, tökum þá 15 mínútna kríu ef svefn sækir að.
Hér fyrir neðan má sjá afleiðingar slysa þar sem ökumaðurinn var þreyttur undir stýri: