fbpx
Þriðjudagur 17.júní 2025
Fréttir

Myndband: Uppgjör og átök leigubílstjóra við Leifsstöð náðust á upptöku – „Þú ert fokking hommi“

Hjálmar Friðriksson
Miðvikudaginn 27. júní 2018 16:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ryskingar leigubílstjóra við Leifsstöð náðust á upptöku. Þar má sjá bílstjóra ýta kollega nokkuð harkalega á meðan hann hrópar „hommi“ og fleiri ókvæðisorðum. Samkvæmt heimildum DV voru mennirnir áður vinir en ekki er vitað af hverju slettist uppá vinskapinn. Myndbandið má sjá hér fyrir neðan. Atvikið átti sér stað nú í vikunni.

Sá sem sleit vinskapnum óttaðist að sinn gamli vinur myndi beita stuðbyssu sem hann taldi að hann geymdi í bíl sínum. Því hafi hann tilkynnt lögreglu um meint vopn og varð það til þess að upp úr sauð við Leifsstöð. Sá sem kallar „hommi“ í myndbandinu ku vera eigandi stuðbyssunnar.

DV hefur rætt við eiganda leigubílastöðvarinnar sem leigubílstjórinn starfaði hjá. Segir hann að bílstjórinn hafi nýlega tekið til starfa hjá stöðinni. Honum hafi verið sagt upp vegna málsins og sagði eigandinn að ógnandi hegðun eins og sjá má í myndbandinu sé ekki liðin. Því hafi þurft að grípa til aðgerða.

Lögreglan á Suðurnesjum staðfesti að málið sé í skoðun en vill ekki greina frá hvort að stuðbyssa hafi verið gerð upptæk. „Það komu tvær kvartanir nýlega vegna leigubílstjóra. Það hafa engar skriflegar kærur komið til okkar, en þetta eru mál sem eru í skoðun. Ég get staðfest að það eru tvö mál í skoðun,“ segir Sigurgeir Sigmundsson hjá lögreglunni á Suðurnesjum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Akureyrarbær gerði ekkert vegna ófremdarástands á friðuðu húsi

Akureyrarbær gerði ekkert vegna ófremdarástands á friðuðu húsi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Frönsk kona grunuð um að stinga dóttur og eiginmann til bana – Farið fram á gæsluvarðhald síðdegis

Frönsk kona grunuð um að stinga dóttur og eiginmann til bana – Farið fram á gæsluvarðhald síðdegis
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hrinda af stað undirskriftalista gegn þéttingu á bensínstöðvarlóð í Vesturbænum – „Björgum Birkimel“

Hrinda af stað undirskriftalista gegn þéttingu á bensínstöðvarlóð í Vesturbænum – „Björgum Birkimel“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Umsáturseinelti og braut gegn nálgunarbanni á Vesturlandi – Hnýstist í samfélagsmiðla og átti samskipti í annars nafni á Smitten

Umsáturseinelti og braut gegn nálgunarbanni á Vesturlandi – Hnýstist í samfélagsmiðla og átti samskipti í annars nafni á Smitten
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Oddný Eir tekur við Gunnarsstofnun á Skriðuklaustri

Oddný Eir tekur við Gunnarsstofnun á Skriðuklaustri
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Írönsku valdamennirnir lágu sumir í rúmum sínum þegar þeir voru sprengdir í loft upp

Írönsku valdamennirnir lágu sumir í rúmum sínum þegar þeir voru sprengdir í loft upp
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Flugstjórinn hokinn af reynslu og ætlaði að setjast í helgan stein á næstu mánuðum

Flugstjórinn hokinn af reynslu og ætlaði að setjast í helgan stein á næstu mánuðum