

Mikil ólga er innan verkalýðshreyfingarinnar og þar fer Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar-stéttarfélags, fremst í flokki. Sólveig Anna er dóttir útvarpsþulanna Jóns Múla Árnasonar og Ragnheiðar Ástu Pétursdóttur. Þær mæðgur láta sannarlega til sín taka því báðar eru þær á framboðslista Sósíalistaflokksins í Reykjavík. Sólveig Anna er í 6. sæti listans en Ragnheiður Ásta í 31. sæti listans.
Færri vita að hálfbróðir Sólveigar Önnu er einn fremsti tónlistarmaður þjóðarinnar. Það er enginn annar en Eyþór Gunnarsson, sem gerði garðinn frægan með Mezzaforte á árum áður og hefur getið sér gott orð sem upptökustjóri og útsetjari.
