fbpx
Þriðjudagur 17.júní 2025
Fréttir

Sólveig missti manninn sinn fyrir tveimur árum: „Eðlilega verður gífurleg breyting á lífi manns við makamissi“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 11. apríl 2018 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sólveig Pétursdóttir, fyrrverandi dómsmálaráðherra og forseti Alþingis, segir að andlát eiginmanns hennar, Kristins Björnssonar, hafi kennt henni það hversu mikilvægt það er að nota tímann sem við höfum. Kristinn, sem er fyrrverandi forstjóri Skeljungs, lést þann 31. október árið 2015, 65 ára að aldri.

Sólveig ræðir þetta og fleira til í samtali við netmiðilinn Lifðu núna.

Þar kemur fram að Sólveig og Kristinn hafi verið lífsförunautar frá árinu 1973 og skömmu áður en hann lést hafi þau verið búin að kaupa sér íbúð á einni hæð í fjölbýli. Áður en þau fluttu þangað lést Kristinn en Sólveig er búin að koma sér þar vel fyrir.

„Það tók mig nokkurn tíma að átta mig á nýju hlutverki því nú var ég orðin ekkja. Það var ekkert í stöðunni annað en að halda áfram þótt sorgin væri mikil,“ segir hún og bætir við að við þá lífsreynslu að missa einhvern nákominn fari maður að átta sig á hversu mikilvægt það er að lifa lífinu núna.

„Allt sem ég hafði ætlað að gera en hafði ekki haft tíma til eða ætlaði alltaf að gera seinna var orðið of seint að gera með Kristni og þá varð svo kristaltært hversu miklu máli skiptir að nota tímann sem við höfum með ástvinum okkar,“ segir Sólveig sem gegndi embætti dóms- og kirkjumálaráðherra á árunum 1999 til 2003.

Eftir að Sólveig hætti á þingi hefur hún spilað golf mjög reglulega og þar sé á ferðinni íþrótt sem hafi hjálpað henni í gegnum veikindi og fráfall Kristins.

Hér má lesa viðtalið við Sólveigu í heild sinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lögregluaðgerð á Edition hótelinu – Tveir látnir – Starfsfólk í uppnámi – Uppfært

Lögregluaðgerð á Edition hótelinu – Tveir látnir – Starfsfólk í uppnámi – Uppfært
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Vafasömu ítölsku verktakarnir sem klúðruðu uppbyggingu Kársnesskóla flúnir land – Skorað á forsvarsmanninn að mæta fyrir dóm

Vafasömu ítölsku verktakarnir sem klúðruðu uppbyggingu Kársnesskóla flúnir land – Skorað á forsvarsmanninn að mæta fyrir dóm
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ómar hafði ekki erindi sem erfiði – Áminning vegna skammarpósta til dómara stendur

Ómar hafði ekki erindi sem erfiði – Áminning vegna skammarpósta til dómara stendur
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Maðurinn sem komst lífs af opnar sig um slysið – „Ég spennti af mér beltið og fór“

Maðurinn sem komst lífs af opnar sig um slysið – „Ég spennti af mér beltið og fór“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Bongóblíða í höfuðborginni í dag

Bongóblíða í höfuðborginni í dag
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Steingrímur fagnar afmæli FM957 – Heiti stöðvarinnar er hans sem og viðurnefni Auðuns og Sigvalda

Steingrímur fagnar afmæli FM957 – Heiti stöðvarinnar er hans sem og viðurnefni Auðuns og Sigvalda