fbpx
Miðvikudagur 18.júní 2025
Fréttir

Slæm færð er um mest allt Suðurland: Hellisheiði lokuð

Búið að opna veginn um Þrengsli og Suðurstrandarveg – Þungfært en mokstur hafinn

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 12. janúar 2016 07:36

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Slæm færð er um mest allt Suðurland. Búið er að opna veginn um Þrengsli, sem lokaður var fyrr í morgun en Hellisheiði er enn lokuð.

Frá þessu er greint á vef Vegagerðarinnar en þar segir að þæfingsfærð sé víða og sums staðar þungfært en mokstur sé hafinn. Búið er að opna Suðurstrandarveg og verið er að moka á Mosfellsheiði.

Á Vesturlandi eru vegir óðum að verða færir, en ófært er á Fróðárheiði og Útnesvegi á Snæfellsnesi. Upplýsingar vantar um Bröttubrekku. Éljahraglandi er á Vestfjörðum en vegir vel færir.

Hálkublettir eru á vegum á Norðurlandi vestra, raunar þæfingur á Siglufjarðarvegi en verið að hreinsa. Við Eyjafjörð og í Þingeyjarsýslum er hins vegar víða snjókoma, og snjóþekja eða hálka á flestum vegum.

Þæfingsfærð er á Háreksstaðaleið og Fjarðarheiði en verið að hreinsa. Annars er hálka á flestum vegum á Austurlandi, alveg suður í Öræfi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Segist ítrekað rændur í Bónus nema hann afgreiði sig sjálfur og krefst endurgreiðslu – „Takk má leggja inn á reikning“

Segist ítrekað rændur í Bónus nema hann afgreiði sig sjálfur og krefst endurgreiðslu – „Takk má leggja inn á reikning“
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Íranir sagðir hafa 48 tíma til að bjarga sér – Annars mæta Bandaríkin til leiks

Íranir sagðir hafa 48 tíma til að bjarga sér – Annars mæta Bandaríkin til leiks
Fréttir
Í gær

Snorri bregður út af vananum að eigin sögn, sleppir því að vera leiðinlegur þingmaður og telur upp 10 jákvæðar staðreyndir um íslenskt samfélag

Snorri bregður út af vananum að eigin sögn, sleppir því að vera leiðinlegur þingmaður og telur upp 10 jákvæðar staðreyndir um íslenskt samfélag
Fréttir
Í gær

Kurr meðal kristinna eftir frétt Moggans – „Ég á ekki um annað að ræða en að vara fólk við Morgunblaðinu“

Kurr meðal kristinna eftir frétt Moggans – „Ég á ekki um annað að ræða en að vara fólk við Morgunblaðinu“