Allt tiltækt slökkvilið var kallað að iðnaðarhúsnæði
Allt tiltækt slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað að Hólmaslóð 4 í Reykjavík á fjörða tímanum í dag. Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu er búið að ráða niðurlögum eldsins.
Um var að ræða reyk á efri hæð hússins. Í húsinu, sem er iðnaðarhúsnæði eru meðal annars fyrirtækin Brimrún ehf, Kosmos og Kaos, og Veiðihúsið Sakka.
Þá var helmingur slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins kallað að íbúðarhúsi í Lækjarsmára um fjögur leytið. Þar logaði eldur en varðstjóri slökkviliðs hafði ekki frekari upplýsingar um málið þegar leitað var eftir því.