Söngkonan, leikkonan og fegurðarbomban Jennifer Lopez hefur augljóslega aðgang að einhverjum elxír sem okkur hinum er hulinn því það er eins og hún yngist með árunum. Hún fagnaði 51 árs afmælinu sínu þann 24. júlí og í takti við heimsstemninguna í Covid-faraldrinum var deginum fagnað á lágstemmdum nótum. Jennifer dvelst í Hamptons um þessar mundir ásamt fjölskyldunni; unnustanum Alex og dætrum hans, Natasha og Ella, og tvíburunum sínum, Max og Emme. Henni bárust blöðrur, blóm og dýrindis kaka en aldeilis ekkert partí á borð við fimmtugsafmælið hennar sem hún fagnaði með trylltu partíi.
En aftur að samningnum sem Jennifer hefur augljóslega gert við djöfulinn. Þetta yngingarlyf sem hún er að þamba er eitthvað allt annað en áður hefur sést. Vissulega eru konur (og menn) í Hollywood undir mikilli pressu þegar kemur að unglegu útliti en yfirleitt er hægt að spotta fyllingarefni, ofgnótt af botox og lýtaaðgerðir í mílufjarlægð. Ef J.Lo er að nýta sér slíkt, sem bara hlýtur að vera, er hún að vanda valið. Kalt mat; geggjuð gen, líkamsrækt, hollusta og vel valdar fegrunaraðgerðir. Útkoman er algjört æði eins og myndirnar sýna.