fbpx
Sunnudagur 22.júní 2025

Lýtaaðgerðir fræga fólksins – Góð hugmynd eða hvað?

Ritstjórn Bleikt
Sunnudaginn 16. ágúst 2020 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sá fáheyrði atburður átti sér stað á dögunum að Twin Peaks og The Practice leikkonan Lara Flynn Boyle lét sjá sig á almanna-færi í fyrsta sinn í tvö ár.  Lara var áberandi stjarna á tíunda áratug síðustu aldar. Á árunum 1991 – 1999 lék hún í 22 kvikmyndum og hún var um tíma kærasta Jacks Nicholson.

Lara sem er aðeins fimmtug lítur vægast sagt agalega út, ekki sökum aldurs eða slæmra gena, heldur gegndarlausra lýtaaðgerða sem hafa eyðilagt á henni andlitið. Leikkonan hefur haft ákaflega lítið að gera síðustu árin og heldur sig mikið til hlés með eiginmanni sínum og hundi en hún er barnlaus. Lara er auðvitað langt frá því að vera eini skemmtikrafturinn sem fellur í lýtaaðgerðagildruna í eltingarleiknum við eilífa æsku.

Tók fyllingarnar burt 

Í heimi þar sem æska og fegurð trompa allt annað finnst mörgum þeir ekki eiga annarra kosta völ en að reyna að halda í æskufegurðina með lýta- og fegrunaraðgerðum. Gallinn er bara sá að aðgerðirnar heppnast misvel og oft og tíðum elda þær fólk og ófríkka og á endanum líta allir eins út því það fara allir í sömu aðgerðirnar.

Sumir ræða opinskátt um aðgerðirnar og meðal þeirra er kántrígyðjan Dolly Parton sem hefur breytt öllu við sig sem hægt er að breyta. Hún segist vita að hún sé gervileg en segist allan daginn kjósa það heldur en að vera gömul. Friends-stjarnan Courteney Cox hefur einnig opnað sig um eltingarleikinn vonlausa og segist dauðsjá eftir því að hafa farið í aðgerðir og látið troða fyllingarefni í andlitið. Fyrir nokkrum árum lét hún fjarlægja fyllingar og ákvað að eldast með reisn. Ákvörðun sem hún sér ekki eftir því hún er farin að líkjast sjálfri sér á ný.

Courteney Cox reveals filler regrets: "I don't look like myself"

Meðfylgjandi eru nokkrar stjörnur sem hafa fetað fegrunaraðgerðaslóðann með misjöfnum árangri. Vandinn er nefnilega sá að ef þú byrjar er svo erfitt að hætta.

LARA FLYNN BOYLE
Þetta er bara þyngra en tárum taki.

PETE BURNS
Pete Burns heitinn var söngvarinn í Dead or Alive. Þegar hann lést árið 2016 var talið að hann hefði gengist undir yfir 300 aðgerðir.

KATIE PRICE
Glamúr-módelið og sjónvarps-stjarnan er rétt orðin fertug en hefur farið í þrjár andlits-lyftingar, auk alls annars sem hún hefur látið gera. Þrjár!

DOLLY PARTON
Segist ekki vera náttúrulega falleg og hafa orðið að fara í aðgerðir. Við erum ekki sammála því.

MICKEY ROURKE
Leikarinn gerði fjölmargar skvísurnar veikar í hnjánum í hinni erótísku 9 1/2 vika en óteljandi aðgerðir eru ekkert að gera fyrir hann.

HEIDI MONTAG
Raunveruleikastjarnan var aðeins 23 ára þegar hún fór í 10 aðgerðir á einum sólarhring. Það var ekki góð hugmynd.

JOAN VAN ARK
Það er varla hægt að horfa á myndir af henni því húðin virðist hreinlega vera að rotna eftir ítrekaðar aðgerðir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Orri Steinn sagði pabba sínum ósatt daginn áður en þeir mættust

Orri Steinn sagði pabba sínum ósatt daginn áður en þeir mættust
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Segir snjóflóðin árið 1995 og mál sem snúa að börnum erfiðust á ferlinum – „Hvatt til þess að að fólk leiti sér aðstoðar fagfólks“

Segir snjóflóðin árið 1995 og mál sem snúa að börnum erfiðust á ferlinum – „Hvatt til þess að að fólk leiti sér aðstoðar fagfólks“
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Lundúnaliðið sendir inn fyrirspurn

Lundúnaliðið sendir inn fyrirspurn
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Ferðamann rak í rogastans við íslenska náttúruperlu – „Því miður lenti ég í slæmri upplifun í dag“

Ferðamann rak í rogastans við íslenska náttúruperlu – „Því miður lenti ég í slæmri upplifun í dag“
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Draumur Ægis rættist þegar hann hitti átrúnaðargoð sitt – „Lífið verður ekki mikið betra en þetta“

Draumur Ægis rættist þegar hann hitti átrúnaðargoð sitt – „Lífið verður ekki mikið betra en þetta“
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Varpar sprengju inn í umræðuna um þjálfaramálin á Skaganum

Varpar sprengju inn í umræðuna um þjálfaramálin á Skaganum

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.