Breski fjölmiðlamaðurinn Piers Morgan deildi sjaldséðri mynd af föður sínum á samfélagsmiðlum. Faðir hans átti afmæli á dögunum og skrifaði Piers með myndinni:
„Til hamingju með afmælið pabbi, þú lítur út fyrir að vera yngri en ég með hverju árinu.“
Unglegt útlit föður hans vakti mikla athygli og skrifuðu fjölmargir netverjar við færsluna og sögðust halda að þetta væri bróðir hans, ekki faðir hans.
„Vá! Hann lítur út fyrir að vera bróðir þinn, ekki pabbi þinn. Góð gen!“ Skrifaði einn netverji.
„Pabbi þinn? Vá hann virðist ekki vera svo gamall. Til hamingju með hann,“ skrifaði annar.
Piers, sem er 55 ára, svarar netverjum og viðurkennir að faðir hans eldist betur en hann.
Faðir Piers, Glynne, er ekki líffræðilegur faðir hans. Líffræðilegur faðir hans, Vincent Eamonn O‘Meara lést þegar Piers var aðeins 11 mánaða gamall. Móðir Piers giftist Glynne Pughe-Morgan sem gekk honum í föðurstað.