fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024

Lesið í tarot ríkislögreglustjóra – Segir sjálfur af sér embætti: „Haraldur er með vissar ranghugmyndir um sinn eigin frama“

Ritstjórn Bleikt
Sunnudaginn 22. september 2019 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri hefur verið undir smásjánni undanfarið og þolað mikla gagnrýni á störf sín í embætti sem hann hefur gegnt síðustu rúmlega tvo áratugi. DV ákvað að kíkja á hvað tarotspilin segja um framtíð Haraldar í embætti og kennir þar ýmissa grasa. Jafnframt er vert að minna á að lesendur geta sjálfir dregið tarotspil á vef DV.

Traustur vinur

Fyrsta spilið sem kemur upp hjá Haraldi er Sverðriddari. Riddarinn er þó ekki Haraldur sjálfur heldur góður vinur hans sem kemur honum í gegnum þá erfiðleika sem nú steðja að. Þessi vinur er kjarkaður, gáfaður og fær um að takast á við erfiðar aðstæður á jákvæðan máta. Hann er hreinskilinn og tekst opinn á við hvers kyns hindranir. Hann er til staðar fyrir Harald þegar hann þarf á því að halda. Haraldur er nefnilega í bobba og þessi vandræði skrifast hvað helst á mannleg samskipti, sem Haraldur er ekki sterkur í. Haraldur er duglegur við að segja hug sinn og hættir því ekki, en þegar hann kemst loks yfir þennan erfiða hjalla verður útkoman ekki eins og hann bjóst við.

Vondur félagsskapur

Næst eru það 10 sverð, sem merkir að Haraldur þarf að vara sig á þeim félagsskap sem hann er í tengdum vinnunni. Haraldur er með vissar ranghugmyndir um sinn eigin frama og þarf að hlusta á hjartað – ekki heilann í þetta skiptið. Hann hefur það á tilfinningunni að fyrrnefndur félagsskapur eyðileggi fyrir honum á einhvern hátt og það endar svo að Haraldur hörfar burt úr embætti. Haraldi hefur ekki liðið vel undanfarið mitt í stormi gagnrýninnar, en þegar hann segir af sér embætti tekur nýr og betri kafli við. Hann snýr sér að einhverju allt öðru og framtíðin er björt.

Engin neyð

Svo er það Stjarnan. Hún merkir að Haraldur finnur frið og vellíðan þegar að hann segir af sér embætti. Hann fær einnig kærkomna hvíld. Hann gerir sér loks grein fyrir að lausnir fást ekki fyrir kraft viljans heldur með því að láta undan. Það er enginn sem neyðir hann til að segja af sér – hann gerir það algjörlega upp á eigin spýtur. Síðan tekur afar jákvæð reynsla við, ný vinna á nýjum vettvangi, sem gerir það að verkum að Haraldur fær eins konar uppreisn æru. Hann byrjar einnig að hreyfa sig meira og huga að heilsunni sem verður til þess að andlegt og líkamlegt jafnvægi fæst.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Allir þrír leikmenn klárir fyrir United

Allir þrír leikmenn klárir fyrir United
Eyjan
Fyrir 9 klukkutímum

Trúnaði aflétt af leynilegu minnisblaði um meint spillingarmál – „Hlýtur að teljast vafasamt“

Trúnaði aflétt af leynilegu minnisblaði um meint spillingarmál – „Hlýtur að teljast vafasamt“
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum
Stöð 2 lækkar verð
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Segja Zidane nálægt því að taka að sér óvænt starf

Segja Zidane nálægt því að taka að sér óvænt starf
Eyjan
Fyrir 11 klukkutímum

Ólafur Þ. Harðarson: Kosningarnar nú minna mjög á kosningarnar 1980 – spurningin hvort kjósendur kjósa taktískt

Ólafur Þ. Harðarson: Kosningarnar nú minna mjög á kosningarnar 1980 – spurningin hvort kjósendur kjósa taktískt
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Segir ráðamönnum að skammast sín – „Hversu aumt getur sálartetur þessa ofurlaunafólks verið?“

Segir ráðamönnum að skammast sín – „Hversu aumt getur sálartetur þessa ofurlaunafólks verið?“
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Verk og vit sett með pomp og prakt

Verk og vit sett með pomp og prakt
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Nýr þáttur af Íþróttavikunni kominn út – Axel Óskar er gestur

Nýr þáttur af Íþróttavikunni kominn út – Axel Óskar er gestur
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Baldur um ófrægingarherferð gegn sér: „Þetta hefur engin áhrif á okkur Felix“

Baldur um ófrægingarherferð gegn sér: „Þetta hefur engin áhrif á okkur Felix“

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.