Kylie Jenner, snyrtivörumógull og samfélagsmiðlastjarna með meiru, verður í næsta tölublaði af Playboy. Hún birtir fyrstu myndina á Instagram, en á myndinni er hún kviknakin og heldur utan um kærasta sinn og barnsföður, Travis Scott.
https://www.instagram.com/p/B2O7f2wnzwe/
Playboy hefur deilt þremur myndum af Kylie, eða í raun þremur myndum sem gera eina mynd. Sjáðu hér að neðan.
Af þessum tveimur myndum af dæma má búast við að sjá fleiri af ofurparinu.
Kylie Jenner er ófeimin við að birta myndir af sér fáklæddri eða naktri. Hún deildi nýlega nektarmynd og vakti sú mynd gríðarlega mikla athygli.