Eins og flestum er kunnugt gengur Hertogaynjan Meghan Markle með fyrsta barn þeirra Harry Bretaprins. Von er á konungsbarninu í vor.
Óléttuljóminn umlykur Meghan eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.
Meghan Markle er að halda „baby shower,“ eða steypuboð eins og það kallast á íslensku, í New York. Meðal gesta eru vinkona hennar og tennisstjarnan Serena Williams og Suits-leikkonan Abigail Spencer. Sjáðu myndir af Hertogaynjunni á leið í veisluna.