Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian mætti á Hollywood Beauty Awards með hárgreiðslumeistaranum Chris Appleton síðastliðinn sunnudag. Kim Kardashian klæddist vintage Thierry Mugler kjól frá 1998.
Það er óhætt að segja að kjóll hennar hafi vakið athygli en hann skildi eftir lítið fyrir ímyndunaraflið. Þetta er líklegast mest sjokkerandi kjóll sem hún hefur klæðst hingað til.
https://www.instagram.com/p/BuBrjiuhoNG/?utm_source=ig_embed
„Lítum við ekki út eins og við séum að fara á skóladansleik?“ sagði Kim Kardashian í myndbandi sem hún deildi á Instagram.
Hvað finnst þér um kjólinn hennar Kim?