fbpx
Mánudagur 02.mars 2026

Klárir Íslenskir karlmenn sem eru á lausu

Aníta Estíva Harðardóttir
Laugardaginn 24. febrúar 2018 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Um síðustu helgi tókum við saman klárar Íslenskar konur sem eru á lausu og er því nú komið að körlunum.

Bleikt skoðaði nokkra klára Íslenska karlmenn sem vill svo til að séu á lausu.

Valþór Örn Sverrisson

Valþór, oftast kallaður Valli í 24 Iceland er eins og gefur til kynna eigandi úra verslunarinnar 24 Iceland. Valli leyfir fólki að fylgjast með leik og störfum á Snapchat og hefur þar vakið mikla lukku fyrir ýmiskonar glens.

Logi Pedro

Logi er einn af flottustu tónlistarmönnum landsins. Logi gefur bæði út sína eigin tónlist ásamt því að framleiða tónlist fyrir aðra söngvara.

Pétur Örn Guðmundsson

Pétur Örn, betur þekktur sem Pétur Jesú er virkilega hress og skemmtilegur. Pétur er tónlistarmaður í húð og hár og kannast líklega flestir Íslendingar við hann. Viðurnefnið, Jesú hlaut Pétur eftir leik sinn í söngleiknum Jesus Christ Superstar og hefur það loðið við í mörg ár.

Börkur Sigþórsson

Börkur hóf feril sinn sem ljósmyndari einungis tuttugu ára gamall. Fljótlega lá leið hans þó í kvikmyndageirann þar sem hann starfar enn í dag ýmist sem leikstjóri, framleiðandi eða höfundur.

Erpur Eyvindarson

Erpur er hvað þekktastur fyrir að hafa verið rappari í hljómsveitinni vinsælu XXX Rottweilerhundar og erfitt hefur verið fyrir íslenska rappara að feta í fótspor hans, enda mætti segja að hljómsveitin hafi rutt íslensku rappi inn á markaðinn á sínum tíma.

Ólafur Arnalds

Ólafur er einn færasti tónlistarmaður landsins og hefur hann meðal annars unnið BAFTA verðlaun fyrir tónlist sína.

Sigurður Þorri Gunnarsson

Sigurður Þorri er einn hressasti útvarpsmaður landsins og stjórnar hann þáttunum Í beinni með Sigga Gunnars, sem er útvarpað alla virka daga á milli 9 og 12 á útvarpsstöðinni K100. Siggi hefur líklega fengið hvern Íslendinginn á fætur öðrum til þess að hlæja enda virkilega skemmtilegur karakter.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 12 klukkutímum

Willum Þór Þórsson: Ein stjarna Ólympíuleikanna var 93 ára og íslensk – önnur var norsk

Willum Þór Þórsson: Ein stjarna Ólympíuleikanna var 93 ára og íslensk – önnur var norsk
Pressan
Fyrir 13 klukkutímum

Þeir sem alast upp í fátækt taka oft þessar venjur með sér inn í fullorðinslífið

Þeir sem alast upp í fátækt taka oft þessar venjur með sér inn í fullorðinslífið
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Stórt sumar framundan í Garðabæ – „Ég á eftir að sjá það“

Stórt sumar framundan í Garðabæ – „Ég á eftir að sjá það“
Eyjan
Fyrir 17 klukkutímum

Orðið á götunni: Vopnaður friður – Var rétta fólkinu fórnað? Gamalt vín á nýjum belgjum

Orðið á götunni: Vopnaður friður – Var rétta fólkinu fórnað? Gamalt vín á nýjum belgjum
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Þetta þýða algengustu draumarnir

Þetta þýða algengustu draumarnir
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Spyr hvort Rúnar verði áfram ef þetta verður staðan – „Held það verði meira að segja rosalega erfitt“

Spyr hvort Rúnar verði áfram ef þetta verður staðan – „Held það verði meira að segja rosalega erfitt“

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.