Loksins er komið að því að við fjölskyldan erum að fara í sumarfrí saman.
Þetta verður í fyrsta skiptið sem við erum öll saman í fríi, alveg í heilar 5 vikur líka!
Síðasta sumar var ömurlegt. Pabbi lést 18. júní og sumarið er eiginlega allt í móðu. Man vel eftir flutningunum í júlí og 10 daga ferðalaginu sem við fórum í, en man ekki mikið meira en það. Ég man hvað ég var með mikið samviskubit eftir sumarið því það var ekki sniðið að börnunum, heldur þá var ég bara ógeðslega sorgmædd (eðlilega) og lofaði sjálfri mér að næsta sumar yrði fullt af fjöri fyrir krakkana!
En fyrir utan síðasta sumar þá erum við Arnór bæði nýlega útskrifuð úr námi þannig að þetta hefur alltaf bara verið þannig að hann er að vinna á sumrin og því höfum við aldrei tekið svona gott frí saman, mikið verður þetta ljúft!
Þetta er alveg frekar langur tími, en tíminn getur verið svo svakalega fljótur að líða samt og áður en maður veit þá er þetta búið. Þannig að mig langaði að gera to do lista fyrir fríið og geri hann 100% sniðinn að krökkunum og hvað þeim finnst gaman að gera. Börnin mín, Óli Freyr og Elín Kara, eru fjögurra og tveggja ára gömul.
Ég ákvað að hafa listann ekki mjög langan, þar sem mig langar til þess að gera allt á listanum og vil hafa þetta raunhæft. Datt svo í hug að deila honum með ykkur ef einhverjum skyldi vanta hugmyndir.
Hér kemur listinn:
Út að leika (erum t.d með badmington fjölskyldusett, frisbí, keilu, mini golf, sandkassadót o.fl.)
Útilega (við förum í útilegu í 10 nætur í byrjun ágúst)
Göngutúr með korti og enda á leikvelli með nesti
Bókasafn að skoða/lesa skemmtilegar bækur
Fara á hvalasýninguna Whales of Iceland
Skemmtigarðurinn/Smáratívolí
Heiðmörk og grilla þar
Vaða í Hvaleyrarvatni
Ísbíltúr/ísgöngutúr
Húsdýragarðurinn
Fara í heimsóknir
Gefa bíbí brauð
Boltaland í Ikea
Fara í strætó
Baka saman
Lautarferð
Göngutúr
Fjöruferð
Hjólatúr
Bátsferð
Berjamó
Skautar
Keila
Sund
Róló
Bíó
Vonandi fenguð þið einhverjar góðar hugmyndir af þessum lista, en þetta eru bara mjög basic hlutir og listinn er eflaust svipaður hjá flestum fjölskyldum. En ég hlakka mikið til að gera allt þetta með börnunum mínum í fríinu!
Vona að þið hafið það gott í sumarfríinu, ég veit að við munum svo sannarlega gera það.
Færslan er skrifuð af Tinnu Freysdóttur og birtist upphaflega á Fagurkerar.is
Hægt er að fylgjast með Tinnu á Snapchat og Instagram undir notandanafninu: tinnzy88