fbpx
Mánudagur 02.mars 2026

Ellen DeGeneres hjálpar 12 ára förðunarsnillingi að láta drauma sína rætast

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Laugardaginn 29. apríl 2017 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ellen DeGeneres er líklegi gjafmildasti þáttastjórnandi í sjónvarpi í dag. Hún er sífellt að koma fólki í þáttunum hjá sér á óvart með ótrúlegum gjöfum og er ein af nýjustu gjöfunum hennar mögulega sú hugulsamasta til þessa. Í síðustu viku var hinn tólf ára gamli Reuben de Maid í þættinum hjá Ellen og söng lagið „And I Am Telling You I‘m Not Going“ úr Dreamgirls. Röddin hans er úr annarri veröld og heillaði hann áhorfendur upp úr skónum með framkomu sinni. Eftir flutninginn settist hann niður með Ellen til að tala um hina ástríðuna í lífi sínu, snyrtivörur.

„Síðan ég var átta ára hef ég verið svo áhugasamur. Ég var vanur að horfa á myndbönd í símanum mínum svo klukkustundum skipti, læra af kennslumyndböndum og bloggsíðum, sjá hvernig það ætti að gera þetta,“

sagði Reuben við Ellen. Hann segir Ellen frá því þegar hann var lagður í einelti í skólanum fyrir að farða sig og hafa áhuga á snyrtivörum.

„Ég var kýldur og það var sparkað í mig. Eftir tvo mánuði reyndi ég að hrista þetta af mér en það virkar ekki. Þannig ég stóð upp gegn þeim og sagði mömmu minni frá.“

Reuben skipti um skóla og taka bekkjarfélagarnir honum sem þeim ótrúlega hæfileikaríka strák sem hann er. Hann á sér marga drauma og er einn þeirra að byrja með sína eigin YouTube rás. Til að hjálpa honum þá gaf Ellen honum allt sem hann þarf til að koma sér af stað og viðbrögðin hans eru eitthvað sem á eftir að hlýja þér um hjartarætur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 13 klukkutímum

Af hverju finnst okkur stundum einhver vera nærri okkur, þrátt fyrir að engin sé þar?

Af hverju finnst okkur stundum einhver vera nærri okkur, þrátt fyrir að engin sé þar?
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Breytt staða á Hlíðarenda – „Það er búið að herða sultarólina“

Breytt staða á Hlíðarenda – „Það er búið að herða sultarólina“
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Stórt sumar framundan í Garðabæ – „Ég á eftir að sjá það“

Stórt sumar framundan í Garðabæ – „Ég á eftir að sjá það“
Eyjan
Fyrir 19 klukkutímum

Orðið á götunni: Vopnaður friður – Var rétta fólkinu fórnað? Gamalt vín á nýjum belgjum

Orðið á götunni: Vopnaður friður – Var rétta fólkinu fórnað? Gamalt vín á nýjum belgjum
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Móðir verulega ósátt við viðbrögðin eftir að barnið kom heim af leikskólanum með áverka – „Þetta er náttúrulega galið hvernig kerfið okkar er“

Móðir verulega ósátt við viðbrögðin eftir að barnið kom heim af leikskólanum með áverka – „Þetta er náttúrulega galið hvernig kerfið okkar er“
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.