fbpx
Mánudagur 02.mars 2026

Sara er nýr snappari – Hyggst nota það til að minnka fordóma í garð Araba

Ritstjórn Bleikt
Mánudaginn 9. janúar 2017 19:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nýr snappari, Sara Mansour, er tuttugu ára stelpa sem ákvað að opna snapchattið sitt þegar hún komst að því að hún hefði hlotið inngöngu í úrvalsháskola í Kaíró, Egyptalandi.

„Mig langaði að leyfa fólki að fylgjast með þegar ég færi út í janúar og mögulega að nota snappið til að minnka fordóma í garð araba,“ segir Sara í samtali við Bleikt, en hún er á leiðinni til Kaíró síðar í mánuðinum.

„Egyptaland er glæsilegt land og fólkið sem býr þar er yndislegt, þó fjölmiðlar hafi ekki sýnt góða hluti af því upp á síðkastið.“ Sara er frekar nýlega búin að gera snappið sitt aðgengilegt öllum.

„Áhorfendafjöldinn fór fljótlega að aukast og mér fannst það vera kjörið tækifæri til að tala um hluti sem skipta mig máli og gætu haft fræðandi áhrif og verið skemmtilegir fyrir þá sem fylgjast með. Áður höfðu nokkrir sagt mér að ég ætti að vera snappari því ég er alltaf að lenda í einhverju vandræðalegu, svo snappið mitt er vonandi ekki of alvarlegt.“

Í dag ákvað Sara að tala um hluti sem skipta hana miklu máli, nefnilega streitu hjá unglingum – sérstaklega stelpum sem nota samfélagsmiðla mikið.

„Ég var að skrifa um þessa hluti í grein fyrir Framhaldsskólablaðið, en ég kannast vel þetta sjálf við enda var ég eingöngu 14 ára þegar ég fékk taugaáfall. Snappið fjallar hins vegar um tvöfeldni samfélagsmiðla og hvernig þeir þurfa ekki alltaf að endurspegla raunveruleikann. Ég vona að sem flestar ungar stelpur og konur sjái það.“

Við hvetjum lesendur til að fylgja Söru á Snapchat: saramansour96

 

 


Sjá meira frá Söru:

Pæling frá Söru um fóstureyðingar: „Skírlífi er ekki skiptimiði fyrir læknishjálp“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 12 klukkutímum

Af hverju finnst okkur stundum einhver vera nærri okkur, þrátt fyrir að engin sé þar?

Af hverju finnst okkur stundum einhver vera nærri okkur, þrátt fyrir að engin sé þar?
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Breytt staða á Hlíðarenda – „Það er búið að herða sultarólina“

Breytt staða á Hlíðarenda – „Það er búið að herða sultarólina“
Pressan
Fyrir 16 klukkutímum

Segja að þessi áhugamál séu góð til að lifa heilbrigðara og lengra lífi

Segja að þessi áhugamál séu góð til að lifa heilbrigðara og lengra lífi
Pressan
Fyrir 16 klukkutímum

Lyf gegn fótaóeirð höfðu skelfilegar aukaverkanir – „Þetta hefur eyðilagt líf mitt“

Lyf gegn fótaóeirð höfðu skelfilegar aukaverkanir – „Þetta hefur eyðilagt líf mitt“
Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Árásir halda áfram eftir sögulegan dauðdaga – Blendnar tilfinningar írönsku þjóðarinnar og mikil óvissa framundan

Árásir halda áfram eftir sögulegan dauðdaga – Blendnar tilfinningar írönsku þjóðarinnar og mikil óvissa framundan
Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Það getur verið auðveldara að sofna ef maður er í sokkum

Það getur verið auðveldara að sofna ef maður er í sokkum

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.