fbpx
Mánudagur 02.mars 2026

Nicki Minaj staðfestir sambandsslitin: „Ég er svo komin yfir þig“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Föstudaginn 6. janúar 2017 13:39

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það eru komnar þrjár vikur síðan að Nicki Minaj setti mynd á Instagram af Chanel inniskóm þar sem hún gaf í skyn að sambandið hennar og Meek Mill væri búið. Gaf hún það sterklega í skyn að hann hefði klúðrað þessu.

Nicki Minaj og Meek Mill.

„Guði sé lof fyrir að ég slapp fyrir horn. Ég er svo komin yfir þig,“

stóð í færslunni. Hún merkti einnig færsluna með kassamerkinu #BestThingUNeverHad eða „það besta sem þú áttir aldrei.“

https://www.instagram.com/p/BN4a-cvDdpd/

Það fylgdu engar útskýringar með Instagram færslunni og það er ekki fyrr en núna að hún hefur opinberlega staðfest sambandsslit hennar og Meek Mill, en þau byrjuðu saman 2015. Hún staðfesti sambandsslitin á Twitter.

„Til að staðfesta, já ég er einhleyp. Einbeiti mér að vinnunni og hlakka til að deila því með ykkur mjög bráðlega. Eigið blessað nýtt ár. Elska ykkur.“

Þau sáust síðast saman 3.desember í útgáfupartý Meek.

Samkvæmt E!Online þá hættu þau saman vegna samskiptaörðugleika.

„Þau voru að rífast reglulega einhvern tíma varðandi nokkur málefni sem komu Nicki í uppnám. Þau áttu svo stærra rifrildi í kjölfarið og ákváðu eftir það að hætta saman,“

sagði heimildarmaður E!Online um fyrrverandi parið. Sagði heimildarmaðurinn einnig að það hafi verið Nicki sem vildi slíta sambandinu og að það væri enn ást á milli þeirra tveggja.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 12 klukkutímum

Willum Þór Þórsson: Ein stjarna Ólympíuleikanna var 93 ára og íslensk – önnur var norsk

Willum Þór Þórsson: Ein stjarna Ólympíuleikanna var 93 ára og íslensk – önnur var norsk
Pressan
Fyrir 13 klukkutímum

Þeir sem alast upp í fátækt taka oft þessar venjur með sér inn í fullorðinslífið

Þeir sem alast upp í fátækt taka oft þessar venjur með sér inn í fullorðinslífið
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Stórt sumar framundan í Garðabæ – „Ég á eftir að sjá það“

Stórt sumar framundan í Garðabæ – „Ég á eftir að sjá það“
Eyjan
Fyrir 17 klukkutímum

Orðið á götunni: Vopnaður friður – Var rétta fólkinu fórnað? Gamalt vín á nýjum belgjum

Orðið á götunni: Vopnaður friður – Var rétta fólkinu fórnað? Gamalt vín á nýjum belgjum
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Þetta þýða algengustu draumarnir

Þetta þýða algengustu draumarnir
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Spyr hvort Rúnar verði áfram ef þetta verður staðan – „Held það verði meira að segja rosalega erfitt“

Spyr hvort Rúnar verði áfram ef þetta verður staðan – „Held það verði meira að segja rosalega erfitt“

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.