fbpx
Laugardagur 27.september 2025

Hrefna Líf safnar fyrir heimkomu hundanna sinna með tónleikum

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Fimmtudaginn 24. ágúst 2017 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hrefna Líf Ólafsdóttir snappari og pistlahöfundur flutti ólétt út til Spánar síðasta haust til þess að læra dýralækningar. Eftir erfiða önn í skólanum eignaðist hún sitt fyrsta barn í miðjum lokaprófum og fékk ekki undanþágu frá skólanum til þess að halda áfram námi. Hún flutti því aftur til Íslands í sumar og hefur hún leyft fylgjendum sínum á snapchat að fylgjast með ferlinu.

Hrefna Líf á tvo hunda sem skipta fjölskylduna rosalega miklu máli, þau Myrru og Frosta. Þau fluttu út til Spánar með fjölskyldunni og eru þeir nú staddir í Noregi hjá vinafólki hennar og bíða þess að komast heim en flutningsferli dýra til Íslands er strembið og dýrt og ákvað Hrefna því að gera eitthvað sniðugt til þess að safna fyrir kostnaðinum.

 

Hrefna ákvað því að halda tónleika þar sem hún hefur víða vakið athygli með rödd sinni og ætlar hún þann 5. september næstkomandi að taka öll sín uppáhalds lög og blúsa þau upp í Tjarnarbíói.

Hægt er að hlusta á tóndæmi frá Hrefnu Líf hér fyrir neðan og kaupa miða á tónleikana hér.

Hægt er að fylgjast með Hrefnu Líf á Snapchat undir nafninu : hrefnalif

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Skrifar nokkuð óvænt undir eftir mikla óvissu í sumar

Skrifar nokkuð óvænt undir eftir mikla óvissu í sumar
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Musk sagði að Trump væri í Epstein-skjölunum en svo reynist hann vera þar sjálfur

Musk sagði að Trump væri í Epstein-skjölunum en svo reynist hann vera þar sjálfur
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Stytta reist af Trump og Epstein við þinghúsið í Washington – „Bestu vinir að eilífu“

Stytta reist af Trump og Epstein við þinghúsið í Washington – „Bestu vinir að eilífu“
Fókus
Fyrir 17 klukkutímum

Segir að hann hafi ekki verið latur heldur annars hugar vegna ummæla Charlie Sheen

Segir að hann hafi ekki verið latur heldur annars hugar vegna ummæla Charlie Sheen
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Eigendur Tottenham neita að selja

Eigendur Tottenham neita að selja
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Breytingar hjá Amorim urðu til þess að ungir leikmenn rugluðust – Urðu að taka Uber

Breytingar hjá Amorim urðu til þess að ungir leikmenn rugluðust – Urðu að taka Uber