fbpx
Miðvikudagur 15.maí 2024

Lítt þekkt ættartengsl: Oddvitinn og söngdívan

Björn Þorfinnsson
Miðvikudaginn 28. mars 2018 13:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir var í síðustu viku kynnt sem oddviti Viðreisnar í Reykjavík í komandi sveitarstjórnarkosningum. Í félagatali Félags kvenna í atvinnulífi titlar hún sig sem fjárfesti, frumkvöðul og forstjóra. Nú síðast starfaði hún sem forstjóri ferðaþjónustufyrirtækisins Gray Line á Íslandi. Þá var hún um árabil forstjóri og einn af eigendum Pizza Hut á Íslandi og Finnlandi.

Þórdísi Lóu var hent beint út í djúpu laugina þegar hún mætti í viðtal hjá sjónvarpsmanninum Sindra Sindrasyni í beinni útsendingu í fréttum Stöðvar 2 strax eftir að listinn var kynntur. Sindri var afar ágengur í viðtalinu og kom það Þórdísi Lóu augljóslega í opna skjöldu. Öll viðtöl verða auðveld eftir þessa eldskírn.

Yngri systir Þórdísar Lóu er hin þjóðþekkta söngkona Hera Björk Þórhallsdóttir. Hera Björk var nýlega í forsíðuviðtali hjá tímaritinu MAN þar sem hún greindi frá því að hún væri í löggildingarnámi í fasteignasölu og hvernig að hún hefði tekið andlega og líkamlega heilsu sína í gegn.

 

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, oddviti Viðreisnar í Reykjavík
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 klukkutímum

Þorvaldur og Ceferin funduðu í Bangkok – Þetta fór þeirra á milli

Þorvaldur og Ceferin funduðu í Bangkok – Þetta fór þeirra á milli
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Áhugaverð tíðindi frá Englandi – Kosið um hvort hætta eigi með VAR í úrvalsdeildinni

Áhugaverð tíðindi frá Englandi – Kosið um hvort hætta eigi með VAR í úrvalsdeildinni
Fókus
Fyrir 5 klukkutímum

Lýtalæknar afhjúpa ástæðuna á bak við „lafandi“ húð Tom Cruise

Lýtalæknar afhjúpa ástæðuna á bak við „lafandi“ húð Tom Cruise
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Ronaldo reynir að fá hann til Sádí og þeir vilja borga væna summu – Bruno átti góðan fund með United

Ronaldo reynir að fá hann til Sádí og þeir vilja borga væna summu – Bruno átti góðan fund með United
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Antony til sölu

Antony til sölu
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Stuðningsmenn Njarðvíkur sagðir hafa brotið fjölda sæta á heimavelli Vals – „Íþróttir kalla fram tilfinningar í fólki“

Stuðningsmenn Njarðvíkur sagðir hafa brotið fjölda sæta á heimavelli Vals – „Íþróttir kalla fram tilfinningar í fólki“