fbpx
Fimmtudagur 11.september 2025
Fókus

Litríkasta langamma í heimi

Stórstjarna á samfélagsmiðlum – Milljónir fylgjenda

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 1. september 2016 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hún er 88 ára gömul, átta barna amma og þriggja barna langamma, en gefur skít í staðalmyndir um ömmur og aldurhnignar konur. Helen Ruth Elam Van Winkle fæddist þann 18. júlí árið 1928 en hún er yfirleitt kölluð Baddiewinkle og er rísandi stjarna í heimi samfélagsmiðla.

Í stað þess að steikja kleinur og prjóna sokka hefur þessi aldraða amma og langamma ákveðið að helga tíma sinn tísku og almennu flippi á samfélagsmiðlum síðustu fjögur árin. Kjörorð hennar eru „Stealing your man since 1928“, en það sem helst einkennir myndir hennar og framgöngu er klæðnaður sem er langt yfir meðallagi litríkur og yfirlýsingagleði varðandi lögleiðingu kannabisefna í lækningaskyni. Hún á heima í Knoxville, Tenessee, en ævintýrið byrjaði þegar Baddie prófaði að klæða sig upp í föt eins langömmubarnsins og fékk svo hjálp við að setja mynd af sér á Twitter.

Þegar stórstjarnan Rihanna byrjaði að fylgja Baddiewinkle fóru hjólin að snúast og fljótlega náði fjöldi fylgjenda fyrstu milljóninni. Nú er hægt að finna Baddie á Twitter, Instagram og Snapchat undir heitinu @baddiewinkle.

Baddie er með meira en tvær milljónir fylgjenda á Instagram, þar sem hún birtir reglulega myndir og myndbönd af sér. Hún er tíður gestur á verðlaunahátíðum og í spjallþáttum af ýmsu tagi og varla þarf að minnast á að það þykir mjög smart að láta sjá sig með henni á mannamótum.

Regnbogar eru í talsverðu uppáhaldi hjá Baddie.
Undir regnboga Regnbogar eru í talsverðu uppáhaldi hjá Baddie.
Áletrunin á bolnum gæti útlagst: „Vertu drusla, gerðu hvað sem þú vilt!“
Góður grunnlitur! Áletrunin á bolnum gæti útlagst: „Vertu drusla, gerðu hvað sem þú vilt!“
Baddie er fráleitt feimin við að klæðast skærum litum.
Læðist ekki með veggjum Baddie er fráleitt feimin við að klæðast skærum litum.
Þarna hefur Baddie ákveðið að skella sér í forláta topp úr plasti og glimmer.
Stundum léttklædd Þarna hefur Baddie ákveðið að skella sér í forláta topp úr plasti og glimmer.
Bleikur loðjakki og kannabis-sundbolur – því ekki það?
Slakað á í innkeyrslunni Bleikur loðjakki og kannabis-sundbolur – því ekki það?
Bleiki spandexkjóllinn og satínklæddir Bítlaskór.
Bleikt og regnbogar Bleiki spandexkjóllinn og satínklæddir Bítlaskór.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Faðir Oscars ákærður

Nýlegt

Arftaki Mourinho klár
Fókus
Í gær

Leikarinn fór í fitusog eftir að vændiskona særði tilfinningar hans með einu orði

Leikarinn fór í fitusog eftir að vændiskona særði tilfinningar hans með einu orði
Fókus
Í gær

Nýkrýnd Ungfrú Ameríka fékk ljót viðbrögð

Nýkrýnd Ungfrú Ameríka fékk ljót viðbrögð
Fókus
Fyrir 2 dögum

Aðdáendur ringlaðir yfir breyttu útliti Jessicu Simpson

Aðdáendur ringlaðir yfir breyttu útliti Jessicu Simpson
Fókus
Fyrir 2 dögum

Beggi Ólafs var ber að ofan í Central Park og lenti í óvæntu samtali – „Var ekki að búast við því að gráta þennan morguninn“

Beggi Ólafs var ber að ofan í Central Park og lenti í óvæntu samtali – „Var ekki að búast við því að gráta þennan morguninn“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Lilja Katrín orðlaus með viðtökur sólarhrings bakstursmaraþons – „Hlýjan, kærleikurinn og góðmennskan verður ekki metin til fjár“

Lilja Katrín orðlaus með viðtökur sólarhrings bakstursmaraþons – „Hlýjan, kærleikurinn og góðmennskan verður ekki metin til fjár“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Eiginmaðurinn var að lifa tvöföldu lífi – „Hvernig gat hann gert mér þetta?“

Eiginmaðurinn var að lifa tvöföldu lífi – „Hvernig gat hann gert mér þetta?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Kynntist karlmanni frá Kenía eftir að hafa uppgötvað svik eiginmannsins

Kynntist karlmanni frá Kenía eftir að hafa uppgötvað svik eiginmannsins
Fókus
Fyrir 4 dögum

Hendur og fætur hafa ekkert að segja um typpastærð – En þessi líkamshluti gerir það

Hendur og fætur hafa ekkert að segja um typpastærð – En þessi líkamshluti gerir það