fbpx
Föstudagur 22.ágúst 2025
Fókus

Hvað er á seyði?!

Krakkarokk í Norræna húsinu, partísýning í Bíó Paradís og fyrirlestur um líðan unglinga

Margrét Gústavsdóttir
Föstudaginn 3. nóvember 2017 16:41

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Föstudaginn 3. nóvember kl. 20.00

Dagbók Bridgetar Jones – Partísýning í Bíó Paradís

Hin seinheppna Bridget Jones heldur úti dagbók til þess að koma lífi sínu í lag. Ógleymanleg og ljúfsár, stórskemmtileg gamanmynd með þeim Renée Zellweger, Colin Firth og Hugh Grant í aðalhlutverkum. Myndin er af þeirri gerð sem margir vilja sjá aftur og aftur og því er tilvalið að mæta á Partísýningu í Bíó Paradís, þiggja tilboð á barnum og dreypa jafnvel á rauðu eða hvítu en á partísýningum má taka alls konar drykki með inn í sal.

Sunnudaginn 5. nóvember kl. 13.00–15.00

Airwaves fyrir unga fólkið – og foreldra þeirra

Í Norræna húsinu verður boðið upp á lifandi tónlist fyrir alla aldurshópa ásamt kynningu á tónlistarleiknum Mussila Musical monster adventure.
Dagskráin hefst á tónlistaratriði fyrir yngstu kynslóðina með lögunum af vísnaplötunum, Einu sinni var og Út um græna grundu í útsetningum Gunnars Þórðarsonar. Eftir pásu stígur á svið Góði Úlfurinn sem flytur tvö lög, því næst tekur Vegan klíkan við sviðinu og flytur músíkalskt rapp.

Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.

Miðvikudaginn 8. nóvember kl. 20.00–21.30

Líðan unglinga – fyrirlestur í Seljakirkju

Álfheiður Guðmundsdóttir, sálfræðingur hjá þjónustumiðstöð Breiðholts, mun fjalla um líðan unglinga á fræðslukvöldi Seljakirkju. Margir unglingar glíma við kvíða, depurð og þunglyndi og mun Álfheiður ræða einkenni og hvernig best sé að styðja við og sporna gegn erfiðri líðan. Fræðslukvöldið er öllum opið og þátttakendum að kostnaðarlausu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Hanna Kristín og Atli Freyr orðin hjón

Hanna Kristín og Atli Freyr orðin hjón
Fókus
Fyrir 2 dögum

Hjálmar Örn játaði 40 ára gamalt bernskubrek – „Síðasti þáttur fyrir sumarfrí kom á DV með rúðurnar og löggumálið“

Hjálmar Örn játaði 40 ára gamalt bernskubrek – „Síðasti þáttur fyrir sumarfrí kom á DV með rúðurnar og löggumálið“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Léttist um tæp 60 kíló í Biggest Loser en það átti eftir að kosta hann mikið

Léttist um tæp 60 kíló í Biggest Loser en það átti eftir að kosta hann mikið
Fókus
Fyrir 3 dögum

Að finna von í myrkrinu – Bergdís segir sína sögu

Að finna von í myrkrinu – Bergdís segir sína sögu
Fókus
Fyrir 4 dögum

Ljósbrot tilnefnd til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs 2025

Ljósbrot tilnefnd til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs 2025
Fókus
Fyrir 4 dögum

Segist hafa lent í túristagildru á veitingastað á Íslandi – „Diskurinn kom nákvæmlega svona“

Segist hafa lent í túristagildru á veitingastað á Íslandi – „Diskurinn kom nákvæmlega svona“