fbpx
Miðvikudagur 11.mars 2026
Fréttir

Vildi rifta kaupum á hestinum Grút vegna meints galla

Ritstjórn DV
Föstudaginn 13. febrúar 2026 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tvær konur tókust á fyrir Héraðsdómi Reykjaness um reiðhestinn Grút. Önnur hafði keypt hestinn af hinni en taldi Grút vera haldinn galla og vildi rifta kaupunum.

Grútur er 13 vetra en seljandi hans hafði sjálf keypt hann haustið 2024. Af því tilefni lét hún framkvæma á honum læknisskoðun og gerði dýralæknir engar athugasemdir við hestinn og sagði hann í góðum holdum. Eitthvað eftir kaupin lét seljandinn raspa tennur hans en nefndi dýralæknir þá að ein tönn væri ekki eins og hún ætti að vera. Dýralæknirinn tók þó fram að þetta virtist ekkert plaga hestinn og því þyrfti ekki að hugsa um þetta frekar.

Kaupandinn keypti Grút vorið 2025 en eftir að kaupin fóru fram uppgötvaði hún að Grútur væri með aukatönn. Taldi kaupandinn að þessi tönn væri að valda honum óþægindum og hindra eðlilega starfsemi munns og meltingar. Hún vildi því rifta kaupunum, fá kaupverðið endurgreitt og að seljandi myndi endurgreiða henni dýralækniskostnað, alls um 773 þúsund krónur. Loks krafðist hún að seljandi myndi taka við Grút aftur.

Seljandi hafnaði þessari kröfu. Hún hafi sjálf spurt kaupanda hvort hún vildi ekki afla sér læknisvottorðs vegna kaupanna eða hvort það væri nóg að fá afhent vottorðið sem seljandi fékk þegar hún sjálf keypti hestinn. Kaupandi ákvað að þiggja síðari kostinn og lét ekki framkvæma sérstaka skoðun. Eins benti seljandinn á að þessi aukatönn hefði ekki valdið hestinum óþægindum. Hann væri 13 vetra, í góðum holdum og kunnáttumenn hefðu lýst honum sem öruggum og góðum reiðhesti.

Dómari ásamt sérfróðum meðdómara fóru upp í hesthús til að skoða Grút. Sá sérfróði gat ekki séð að aukatönnin væri að valda nokkrum óþægindum og auk þess ætti að vera auðvelt að fjarlægja hana ef vilji væri til þess, þó að sá sérfróði teldi það ekki nauðsynlegt. Niðurstaðan var sú að Grútur taldist ekki gallaður. Hann hafði haft þessa aukatönn að minnsta kosti í 10 ár og hún þá ekki verið honum til vandræða. Við skoðun var hesturinn í góðu standi miðað við árstíma og ekki að sjá að aukatönnin væri að valda því að hann fóðraðist illa. Rakti dómari að kaupandinn hafi sjálf borið vitni og greint frá því að hún hafi ekki verið hrifin af því hvað Grútur var viljugur og spenntur þegar hún prófaði hann fyrir kaupin. Þetta hefði gefið henni ástæðu til að láta skoða hestinn frekar, sem hún gerði samt ekki. Seljandi var því sýknuð af kröfu kaupandans og málskostnaður var felldur niður.

Dómurinn féll þann 11. febrúar sl. 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Reyndi að taka á móti stórri kókaínsendingu á heimili sínu

Reyndi að taka á móti stórri kókaínsendingu á heimili sínu
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Dagur segir Miðflokkinn þurfa að gera hreint fyrir sínum dyrum vegna frétta um tengsl við MAGA hreyfinguna

Dagur segir Miðflokkinn þurfa að gera hreint fyrir sínum dyrum vegna frétta um tengsl við MAGA hreyfinguna
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Blóðug aðkoma í Edition-málinu – Lýsti sjálfri sér sem skrímsli og sagði fjölskylduna hafa ætlað að deyja saman

Blóðug aðkoma í Edition-málinu – Lýsti sjálfri sér sem skrímsli og sagði fjölskylduna hafa ætlað að deyja saman
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Rannsókn á brunanum í Gufunesi lokið – Hleðslutæki líklegur sökudólgur

Rannsókn á brunanum í Gufunesi lokið – Hleðslutæki líklegur sökudólgur
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Rósa ráðin verkefnastýra Jafnvægisvogar FKA

Rósa ráðin verkefnastýra Jafnvægisvogar FKA
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Notkun gervigreindar breiðist út meðal íslenskra fyrirtækja en markviss innleiðing og stefnumótun sjaldgæfari

Notkun gervigreindar breiðist út meðal íslenskra fyrirtækja en markviss innleiðing og stefnumótun sjaldgæfari
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Náfrænka bæjarstjóra aftur hrakin frá störfum vegna óánægju – Fær nýja vinnu hjá bænum

Náfrænka bæjarstjóra aftur hrakin frá störfum vegna óánægju – Fær nýja vinnu hjá bænum
Fréttir
Í gær

Skilorðsbundinn dómur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á Ölveri

Skilorðsbundinn dómur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á Ölveri
Fréttir
Í gær

Dagur segir Miðflokkinn taka stöðu gegn almenningi – „Vaxtagreiðslur eru ótrúlega stór hluti af útgjöldum húseigenda“

Dagur segir Miðflokkinn taka stöðu gegn almenningi – „Vaxtagreiðslur eru ótrúlega stór hluti af útgjöldum húseigenda“
Fréttir
Í gær

Þarf að bera vitni með meintan kvalara sinn í dómsalnum – „Þú fucking þorir ekki að svara“

Þarf að bera vitni með meintan kvalara sinn í dómsalnum – „Þú fucking þorir ekki að svara“